Unglingastarf


Starfslýsing þessarar nefndar er í grófum dráttum, að styrkja umgjörð keppnishópa, sjá um skipulagningu ferðalaga á vegum klúbbsins tengdum keppnum. Umsjón með fararstjórn á keppnisstaði og undirbúningur fyrir sveitakeppni GSÍ sem og skipulagningu utanlandsferðar afrekshópa sem farin er á vorin. Einnig skal nefndin veita starfinu gott aðhald með reglulegum fundum og í framhaldi skýrslu til Íþróttastjóra.
 

15. maí 2012

Sumaræfingar unglinga - skráning hefst 16.maí

GrafarholtGolfklúbbur Reykjavíkur hefur tekið í notkun félagakerfið Nóra og kemur það til með að halda utan um iðkendaskráningu og greiðslu æfingagjalda. Slóðin fyrir GR hjá Nóra er www.grgolf.felog.is. Einnig er linkur hér inná á heimasíðu GR. Þeir sem eru að skrá sig inn í Nóra í fyrsta skipti verða fyrst að samþykkja skilmála og smella á “Nýskráning”. ATH að foreldri/forráðamaður þarf að skrá sig inn, ekki iðkandinn., svo krakkar þið þurfið að biðja foreldra/forráðamann ykkar að stofna sér aðgang. Þeir sem áður eru búnir að fara í gegnum nýskráningu og eru með lykilorð þurfa einungis að samþykkja skilmála, slá inn kennitölu, lykilorð og smella á “Innskráning”. Þá er farið beint á síðuna “Mínir iðkendur”. Greiða þarf með kreditkorti eða með ráðstöfun Frístundakorts. Þeir sem æfa þrisvar sinnum í viku greiða 13000.-kr og þeir sem æfa tvisvar sinnum í viku greiða 8600.-kr Þann 16.maí hefst skráning á sumaræfingar Golfklúbbs Reykjavíkur inná www.grgolf.felog.is sem hefjast eftir töflu þann 1.júní. Mikilvægt er að allir sem ætla sér að æfa í sumar skrái sig og greiði æfingargjöld. Allir iðkendur hvort sem um er að ræða í almennustarfi eða afreksstarfi þurfa að skrá sig. Æfingatöflur allra hópa eru að finna hér inná síðunni undir unglingastarf, einnig inná bloggsíðu unglingastarfsins www.grunglingar.blog.is. Sé eitthvað óljós varðandi skráningu er hægt að hafa samband við skrifstofu GR í síma 585-0200 og fá aðstoð við nýskráningu. Ekki er tekið við skráningu á skrifstofunni. Hlökkum til að sjá ykkur á æfingunum í sumar. Með bestu kveðjum Brynjar Eldon Geirsson Íþróttastjóri GR.

22. mars 2012

Fjáröflun hjá unglingum GR

Barna- og unglingastarf GR stendur fyrir fjáröflun þessa dagana vegna æfingaferðar þeirra til Spánar í vor. Þessa vikuna eru krakkarnir að selja hágæða saltfisk. Um er að ræða léttsaltaðar þorskhnakkasteikur, í 2 kg pakkningum á aðeins 3.600 krónur, heimsent. Þetta er ótrúlega góður lúxusfiskur. Tekið er við pöntunum á netfangið atli@hofudbok.is. Barna- og unglingastarf GR.

Styrktaraðilar GR

Þú ert hér: