Vorið er á næsta leyti og tíminn til að rífa sig í gang er núna!
Er ekki tilvalið þá að skella sér á golfnámskeið í apríl og fara inní sumarið vel æfður og undirbúin. Eftirfarandi námskeið verða í boði hjá Arnari Snæ í apríl:
Byrjendanámskeið – Besta leiðin til að byrja í golfi
Framhaldsnámskeið – Framhaldsnámskeið fyrir byrjendur til að taka næsta skrefið og þá sem eru að snúa sér aftur að golfi og vilja fá góða upprifjun
Almennt námskeið – Frábært námskeið fyrir alla kylfinga
Yfirferð fyrir lengri komna – Fyrir þá sem vilja yfirferð á öllum leiknum sínum fyrir sumarið
Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan:
Byrjendanámskeið
Frábært námskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í leiknum og vilja gera þetta rétt og ná tökum á leiknum sem fyrst. Námskeiðið er fimm skipti (4x 60 mín) frá klukkan 19:00-20:00 á miðvikudögum. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 6.apríl og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
6. apríl | Básar | Grip/staða |
13. apríl | Básar | Grunnatriði sveiflunnar |
20. apríl | Básar | Járnkylfur/trékylfur |
27. apríl | Básar | Upprifjun og fínpúss |
Verð kr. 20.000 (Boltar ekki innifaldir)
Framhaldsnámskeið
Námskeið fyrir golfara sem eru að byrja aftur og vilja góða upprifjun. Námskeiðið er fjögur skipti (4x 60 mín) frá klukkan 17:30-18:30 á mánudögum og miðvikudögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 4.apríl og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
4. apríl | Básar | Grip/Staða |
6. apríl | Básar | Járnahögg |
11. apríl | Básar | Trékylfur |
14. apríl | Básar | Upprifjun og fínpúss |
Verð kr. 20.000 (Boltar ekki innifaldir)
Almennt námskeið
Upplagt námskeið fyrir þá kylfinga sem ætla að fara með leikinn sinn á næsta plan í sumar. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 17:00-18:00 á þriðjudögum og fimmtudögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 15.apríl og verður kennt á eftir eftirtöldum dagsetningum:
5. apríl | Básar | Járnahögg og lengdir |
7. apríl | Básar | Teighögg |
12. apríl | Básar | Brautartré |
19. apríl | Básar | Boltaflug/leikskipulag |
21. apríl | Básar | Pitch/Stutthögg |
Verð kr. 24.000 (Boltar ekki innifaldir)
Yfirferð fyrir lengri komna
Upplagt námskeið fyrir þá kylfinga sem ætla að fara með leikinn sinn á næsta plan í sumar. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 17:30-18:30 á mánudögum og miðvikudögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 4.apríl og verður kennt á eftir eftirtöldum dagsetningum:
4. apríl | Básar | Járnahögg/lengdir |
6. apríl | Básar | Teighögg/Boltaflug |
11. apríl | Básar | Blendingar/trékylfur |
13. apríl | Básar | Leikskipulag/mið |
20. apríl | Básar | Pitch/Stutt högg |
Verð kr. 24.000 (Boltar ekki innifaldir)
Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru fjórir kylfingar. Kennari verður Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is