Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ný forgjöf
Leikmaður sem hefur forgjöf skal skila inn a.m.k. fjórum gildum skorum á almanaksárinu af viðurkenndum golfvöllum. Leikmaður sem gerir það ekki missir EGA grunnforgjöf og hefur þá ekki heimild til að skrá sig í keppni þar sem EGA grunnforgjafar er krafist.Leikmaður sem hefur forgjöf skal skila inn a.m.k. fjórum gildum skorum á almanaksárinu af viðurkenndum golfvöllum. Leikmaður sem gerir það ekki missir EGA grunnforgjöf og hefur þá ekki heimild til að skrá sig í keppni þar sem EGA grunnforgjafar er krafist.
Leikmenn með EGA grunnforgjöf í forgjafarflokknum 2 til 5 (forgj. 4,5 og hærri) mega nota æfingaskor til forgjafarreiknings og er skilyrði að leikmaður hafi skráð sig á þar til ætlaðan lista áður en hann hóf leik. Skili leikmaður ekki skorkortinu að leik loknum veldur það hækkun forgjafar eins og hann hafi ekki lokið leik.
Undantekning frá skilyrðum um fyrirfram skráningu gildir fyrir leikmenn í forgjafarflokknum 3 til 5 ( forgj. 11,5 og hærri) ef um lækkun á forgjöf er að ræða.
Skráning á skorkort verður að innihalda eftirtalin atriði.
a. dagsetningu þegar umferðin er leikin
b. nafn leikmannsins og kennitölu eða félagsnúmer
c. skor (högg og áunna punkta)
d. undirskrift ritara
e. undirskrift leikmannsins
f. EGA grunnforgjöf leikmannsins
g. EGA leikforgjöf leikmannsins
Í því skyni að létta álagi af skrifstofu GR er mælst til þess að leikmenn skrái sjálfir skor sitt inn á netinu (golf.is) og er þá óþarft að skila skorkortinu til klúbbsins. Eftir sem áður geta félagar skilað skorkortum til forgjafar á skrifstofu GR eða í þar til gerðan kassa í klúbbhúsum félagsins. Starfsfólk klúbbsins skráir inn skor samkvæmt kortunum. Skor í mótum eru skráð af starfsmönnum klúbbsins.
Viðurkenna skal 9 holu leik sem gilda umferð til forgjafarreiknings í forgjafarflokki 5 (forgj. 26,5 og hærri) og til að öðlast forgjöf í fyrsta sinn. Í slíkum tilfellum skal bæta 18 Stableford punktum við árangur 9 holu leiks.
Til að fá EGA grunnforgjöf skal leikmaður skila a.m.k. þremur Stableford* skorum til klúbbsins. Leikmaður verður að leika umferðirnar við forgjafarskilyrði á viðurkenndum golfvelli. Sérhvert skor skal undirritað af ritara og staðfest af leikmanni. Að lágmarki eitt skorið verður að samsvara EGA grunnforgjöf 36 (karlar)/40 (konur), þ.e.36 Stableford punktar eða fleiri og skal besta skorið notað til að reikna út fyrstu EGA grunnforgjöfina. Viðurkenna skal 9 holu leik sem gilda umferð í þessu sambandi.
Hámark EGA grunnforgjafar skal vera 36 fyrir karla og 40 fyrir konur.
Hámarkshækkun EGA grunnforgjafar skal vera 2,0 umfram lægstu EGA grunnforgjöf viðkomandi á almanaksárinu.
Leikmaður ber ábyrgð á sinni forgjöf og skal færa samviskusamlega í forgjafarskírteini sitt þá hringi sem gilda til forgjafar.
*Stableford skor: Talning er í punktum miðað við ákveðið skor á hverri holu: Ekkert skor er skráð 0 punktar, einu höggi umfram ákveðið skor 1 punktur (nettó skolli), ákveðið skor 2 punktar (nettó par), höggi minna en ákveðið skor 3 punktar (nettó fugl).
Nánari upplýsingar er að finna í handbókinni ,,Golfreglur''
ÁBENDING UM VIÐHALD FORGJAFAR.
EGA forgjafarkerfið var fyrir nokkrum árum innleitt á Íslandi. Í reglum þess segir m.a.:
• Tilgangur kerfisins er að sjá kylfingum fyrir réttlátri forgjöf sem leiðrétt sé í samræmi við hve erfiður leikinn völlur sé, og að ná jöfnuði og samræmi í forgjafarreikningi um alla Evrópu í framtíðinni.
• EGA forgjafarkerfið byggist á þeirri ætlan að sérhver leikmaður reyni að skora sem best á sérhverri holu í sérhverri umferð sem hann leikur og að hann muni skila eins mörgum gildum skorum og hann getur á hverju almanaksári.
• Það að skila ekki inn minnst fjórum gildum skorum á tímabilinu milli árlegrar endurskoðunar forgjafar getur varðað úreldingu EGA grunnforgjafar í samræmi við fyrirmæli golfsambandsins.
og í Reglubók GR segir í grein 2.1:
• Leikmaður sem hefur forgjöf skal skila inn a.m.k. fjórum gildum skorum á almanaksárinu af viðurkenndum golfvöllum. Leikmaður sem gerir það ekki missir EGA grunnforgjöf og hefur þá ekki heimild til að skrá sig í keppni þar sem EGA grunnforgjafar er krafist.
Klúbbfélögum er að sjálfsögðu í sjálfsvald sett hvernig þeir haga sínum forgjafar-málum en æskilegast er að sem flestir afli sér forgjafar og að skor séu skráð í samræmi við reglur EGA. Forgjafarnefnd skorar því á klúbbfélaga að skrá 4 skor hið minnsta á yfirstandi ári, því búast má við því að við endurskoðun í lok tímabilsins verði grunnforgjöf þeirra er hafa færri en 4 skor skráð, felld niður.
Reglur um færslu forgjafar má finna í Reglubók GR. Kynnið ykkur þessar reglur og gætið þess að skor séu ávallt rétt færð, hvort sem er til hækkunar eða lækkunar. Minnt er á að leikmaður ber ávallt sjálfur ábyrgð á því að forgjöf hans sé rétt.
Kynnið ykkur forgjafarreglur EGA, farið eftir þeim og gerið skemmtilegan leik ennþá skemmtilegri.
Með golfkveðju,
Forgjafarnefnd GR.