Beint í leiðarkerfi vefsins.
Verið velkomin á Strandarvöll.
Golfklúbbur Hellu býður alla GR-inga velkomna á Strandarvöll. Fyrir þá sem ekki hafa komið að Strönd þá er rétt að lýsa staðháttum og því sem gestir geta búist við á vellinum.
Strandarvöllur er staðsettur mitt á milli Hellu og Hvolsvallar. Frá Rauðavatni er um klukkustundar akstur á völlinn ef ekið er á löglegum hraða. Rauðavatn er nefnt í þessu sambandi því stæði Vegagerðarinnar er fyrirtaks staður til hittast og sameinast í bíl ef menn búa í mismunandi borgarhlutum. Allnokkrir félagar í Golfklúbbi Hellu búa á höfuðborgarsvæðinu og nota þessa aðstöðu.
Á venjulegum degi tekur það um þrjá tíma fyrir þriggja manna holl að spila Strandarvöll en talsvert lengri tíma tekur að spila vellina hér í borginni. Það er athyglisvert að það tekur því álíka langan tíma að skreppa austur og spila átján holur og að spila hér í bænum. Þess utan þarf sjaldnast að hafa áhyggjur af rástímum.
Þegar ekið er að Strandarvelli er komið að reisulegu húsi, sem upphaflega gegndi hlutverki skóla fyrir börn á Rangárvöllum, en var breytt í glæsilegt klúbbhús fyrir nokkrum árum. Þar er boðið upp á veitingar og þjónustu við kylfinga, bæði einstaklinga og hópa. Hægt að sjá til allra hola vallarins úr veitingasalnum og þaðan er stórfengleg fjallasýn.
Völlurinn er þannig settur upp að leikmenn geta valið hvort þeir vilja byrja á 1. eða 10. teig en flestum finnst seinni níu holurnar vera heldur erfiðari en þær fyrri. Þetta á sérstaklega við um mitt sumar þegar karginn er orðinn verulega loðinn.
Strandarvöllur er skemmtilegur fyrir alla kylfinga af mörgum ástæðum:
- Með því að velja teiga við hæfi getur hver kylfingur náð sem mestu út úr högglengd sinni.
- Hönnun vallarins verðlaunar nákvæmni högga og góða staðsetningu bolta en krefst ekki mikillar högglengdar kylfinga.
- Kylfingar geta fengið það á tilfinninguna að þeir séu einir í heiminum á vellinum.
- Glæsilegt útsýni er af vellinum.
- Undanfarin ár hefur völlurinn verið í frábæru ástandi og yfirleitt kominn í sumarbúning upp úr miðjum maí.
- Gott æfingasvæði er við klúbbhúsið þar sem slegið er af grasi.
Strandarvöllur er sérlega þægilegur fyrir byrjendur og fyrir því eru meðal annars þessar ástæður:
- Umferð um völlinn er tiltölulega lítil og því þurfa byrjendur ekki að fá á tilfinninguna að þeir séu fyrir öðrum „betri“ kylfingum.
- Brautirnar eru flestar nokkuð breiðar og því er góður möguleiki að hitta þær.
- Yfirleitt er ekki langt af fremstu teigum inná brautir þannig að kylfingar þurfa ekki að vera „sleggjur“ til að drífa inná brautir.
Strandarvöllur er einnig þægilegur fyrir eldri kylfinga og hreyfihamlaða:
- Völlurinn er þægilegur til gangs.
- Yfirleitt er stutt á næsta teig.
- Hæðarmunur er ekki mjög mikill.
- Þeir sem þurfa að nota golfbíla geta fengið bíl leigðan.
- Auðvelt er að komast um völlinn á golfbílum.
Standarvöllur er frábær fyrir fjölskyldufólk:
- Á vellinum er pláss fyrir alla, jafnt háa sem lága.
- Hægt er að æfa alla þætti golfleiksins á æfingasvæðinu.
- Hægt er að gista á vallarsvæðinu.
- Aðgangur er að salernum og sturtum í golfskálanum.
- Stutt er í sundlaugar bæði á Hellu og Hvolsvelli.
- Þægilegt er að sameina golf og skoðunarferðir um nágrennið.
- Hægt er að fara í hellaskoðanir í Landsveit.
- Hestaleigur eru víða í nágrenninu.
- Víða er hægt að komast í veiði.
- Gaman er að heimsækja Sögusetrið á Hvolsvelli.
- Frábær náttúrufegurð er í Fljótshlíð og náttúruperlur eru margar á svæðinu.
- Byggðasafnið á Skógum er í rúmlega hálftíma akstursfjarlægð.
Við hjá Golfklúbbi Hellu viljum endurtaka boð okkar til félaga í GR að koma og heimsækja okkur og eiga eftirminnilegan dag í skemmtilegu umhverfi og að sjálfsögðu í frábæru veðri eins og oftast er á Strandarvelli. Félagsmenn GR greiða 1.000 kr. fyrir spilaðan hring sumarið 2012.