Þorláksvöllur

Árið 1994 ákváðu Landgræðslan og  bæjaryfirvöld í Þorlákshöfn að reyna að hefta sandfok við innkeyrsluna til Þorlákshafnar.   Voru menn það fyrir-hyggjusamir, að samhliða uppgræðslu var ákveðið að gera tilraun með að móta fyrir golfvelli og rækta hann upp. Skemmst er frá því að segja,  að tilraun þessi tókst mjög vel og nú er  í Þorlákshöfn einn glæsilegasti 18 holu golfvöllur landsins.
Árið 1997 var Golfklúbbur Þorlákshafnar stofnaður og fagnar klúbburinn því 10 ára afmæli á árinu.  Með stórhug sveitarfélagsins og dugnaði golfmanna í Þorlákshöfn hefur tekist á mjög skömmum tíma að gera mjög góðan 18 holu  golfvöll. Á allra næstu árum er stefnt að því að halda Íslandsmót í golfi á Þorláksvelli
Samhliða uppbyggingu vallarins hefur tekist að skapa góða þjónustuaðstöðu  fyrir vallargesti. Á árinu 2003 var tekinn í notkun golfskáli  sem gjörbreytti  starfsaðstöðu og rekstri golfklúbbsins til hins betra.
Golfvöllurinn í Þorlákshöfn er svokallaður strandvöllur (e. Links) þar sem undirlagið er fyrst og fremst sandur.  Þess vegna er völlurinn ávallt tilbúinn snemma til leiks á vorin, oftast mun fyrr en vellirnir á höfuðborgarsvæðinu.   Völlurinn liggur meðfram sjávarkambi að hluta og skapar hann oft  skjól fyrir vindi frá sjónum  og gefur möguleika á golfspili í misjöfnum veðrum. Þægilegt er að ganga völlinn og liggja 1. og 10. braut vallarins frá golfskála. Þorláksvöllur er einungis í 30 mínútna akstursfjarlægð frá  Stór – Reykjavíkursvæðinu.

Golfskálinn er opinn alla virka daga frá kl. 12-22 og um helgar frá kl. 8- 20.  Góðar veitingar eru í boði.  Nauðsynja golfvarningur s.s. boltar, tí og hanskar.  Félagsmenn GR greiða 1.500 kr. fyrir spilaðan hring sumarið 2012.


Síminn í golfskálanum er: 483-3009.

         

Styrktaraðilar GR

Þú ert hér: