Stefán Már stigameistari 2011
15.09.2011
Stefán Már Stefánsson úr GR og Signý Arnórsdóttir úr Keili eru stigameistarar á Eimskipsmótaröðinni árið 2011. Stefán Már tryggði sér titilinn með að sigra í lokamótinu sem lauk á Urriðavelli í gær. Hann hlaut alls 5460 stig og var um 280 stigum á undan Haraldi Franklín Magnús úr GR sem varð annar á listanum. Helgi Birkir Þórisson úr GSE varð þriðji á listanum með 4495 stig.
Í kvennaflokki var Signý efst með 6961,25 stig eftir mótin sex í sumar. Þrátt fyrir að vinna ekki mót í sumar safnaði Signý inn stigum með að verða ofarlega í mótum í sumar. Hún varð í öðru sæti á Urriðavelli í gær og tryggði sér þar með stigameistaratitilinn. Íslandsmeistarinn tvöfaldi, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR, varð önnur á listanum með 6673,75 stig en hún hélt til Bandaríkjanna í háskólanám fyrir skömmu og gat því ekki verið með í lokamótinu. Sunna Víðisdóttir úr GR lyfti sér upp í þriðja sæti listans með að sigra í gær á Urriðavelli. Hún hlaut alls 5770 stig í sumar.
0 hafa sagt sína skoðun
Fyrst um sinn getur aðeins ritstjóri spjallsins stofnað til nýrrar umræðu í kerfinu. Félagsmenn, sem vilja koma af stað umræðu um tiltekið málefni, eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við ritstjórann á netfanginu omar@grgolf.is.