Opna MAX1 mótið á sunnudaginn


15.09.2011
Opna MAX1 mótið verður haldið á Grafarholtsvelli sunnudaginn 18. september. Mótið er styrktarmót fyrir karla- og kvennasveitir GR sem halda á Evrópumóti golfklúbba. Karlasveit klúbbsins heldur til Tyrklands og kvennasveit klúbbsins heldur til Grikklands.

Leikfyrikomulag mótsins er punktakeppni. Leikið er í tveimur flokkum. Flokki 0–8,4 og 8,5 og hærra. Hámarksforgjöf karla er gefin 24 og 28 hjá konum. Glæsileg verðlaun verða veitt fyrir 3 efstu sætin í hvorum flokki. Að auki verða veitt nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallarsins.

Verðlaun:

Flokkur 0 – 8,4
1. sæti – 30.000 kr gjafabréf MAX1
2. sæti – 20.000 kr gjafabréf MAX1
3. sæti – 10.000 kr gjafabréf MAX1


Flokkur 8,5 – hærra
1. sæti – 30.000 kr gjafabréf MAX1
2. sæti – 20.000 kr gjafabréf MAX1
3. sæti – 10.000 kr gjafabréf MAX1


Nándarverðlaun
2. braut – Alþrif á bílinn. Gjafabréf
6. braut – Alþrif á bílinn. Gjafabréf
11. braut – Gjafabréf fyrir fjóra á velli GR
17. braut – Alþrif á bílinn. Gjafabréf


Mótsgjald er 3.500 kr.

0 hafa sagt sína skoðun

Segðu þína skoðun

Fyrst um sinn getur aðeins ritstjóri spjallsins stofnað til nýrrar umræðu í kerfinu. Félagsmenn, sem vilja koma af stað umræðu um tiltekið málefni, eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við ritstjórann á netfanginu omar@grgolf.is.

Styrktaraðilar GR

Þú ert hér:

  • > Um GR
  • > Blogg
  • > Opna MAX1 mótið á sunnudaginn