Beint í leiðarkerfi vefsins.
Skráning er hafin í Bændaglímu GR. Leikið verður á Grafarholtsvelli laugardaginn 1.október. Frá og með mánudeginum 26.september verða golfbílar bannaðir á Grafarholtsvelli. Þeir verða þó áfram leyfðir á Korpu eða þar til frétt um annað verður birt.
Nánar um Bændaglímuna:
Bændaglíma GR verður haldin laugardaginn 1.október. Mótið er innanfélagsmót. Leikinn verður 4 manna Texas scramble en tveir og tveir geta þó skráð sig saman og aðrir tveir koma þá á móti sem mynda lið. Leikið verður á Grafarholtsvelli.
Mæting er kl.13:00 SHARP ! Til að mýkja kroppinn fyrir átökin ætlar eldhúsið í Grafarholti að bjóða uppá Mjöð. Til að halda hita á kroppnum á meðan á leik stendur verða skot keyrð í þátttakendur og þeir sem verða svangir á leiðinni þurfa ekki að örvænta, samlokubíllinn mun koma brunandi útá völl og bjóða uppá dýrindis Grafarholtslokur.
Að móti loknu verður verður lambAbernaise og með því í golfskálanum. Barinn verður opinn og við ætlum að kveðja tímabilið með stæl og skemmta okkur vel
Verðlaun veitt fyrir:
Stysta teighögg ( má ekki ná framyfir veg) á fyrstu braut.
Lengsta teighögg (verður að ná framyfir veg) á þriðju braut.
Nánd við par 3 holur í upphafshöggi ( ATH eingöngu í upphafshöggi.....)
Það lið sem stendur uppi sem sigurvegari fær glæsileg verðlaun og jafnvel liðin tvö sem fylgja því hvað fastast á eftir en það verður alfarið ákvörðun mótsstjórnar að vega og meta hvort menn/konur eigi verðlaun skilið og ef mótssjórn líst ekkert á liðin í öðru og þriðja sæti gæti allt eins farið svo að liðið í neðsta sæti verði verðlaunað eða jafnvel liðið í 10 sæti..................
Skráning hefst mánudaginn 26.september kl.10 á www.golf.is og í síma 585-0213
Mótsgjald er kr.4900.-
Innifalið er: Mjöður á undan, skot útá velli, samlokur útá velli, lambAbernaise og meðþví að leik loknum og skemmtun frammá nótt.
Aldurstakmark er 20 ár
Í fyrra seldist upp, svo ekki gleyma að skrá þig.
Fyrst um sinn getur aðeins ritstjóri spjallsins stofnað til nýrrar umræðu í kerfinu. Félagsmenn, sem vilja koma af stað umræðu um tiltekið málefni, eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við ritstjórann á netfanginu omar@grgolf.is.