Sjórinn, Áin og Landið


06.12.2011

Niðurstaða nefndarinnar varð sú að gera tillögu til stjórnar GR um að valin yrðu nöfnin Sjórinn, Áin og Landið. Gott innbyrðis samræmi er
í nöfnunum og þau eru í senn einföld og falleg og vel lýsandi fyrir höfuðeinkenni viðkomandi hluta Korpúlfsstaðavallarins.
Við merkingu vallarins gefst kostur á að undirstrika sérkenni hvers hluta vallarins. Blár litur tengist ánni. Rautt endurspeglar kvöldroðann sem myndast þegar sólin sest í sjóinn.
Sú guli hæfir vel sem einkennislitur landsins. Litirnir og nöfnin verða þannig einkenni viðkomandi hluta vallarins. Þá hugsun má svo þróa áfram t.d. við gerð skorkorta, teigmerkinga og flatarfána.

Haraldur Hilmar Heimisson á heiðurinn að tillögunni sem dómnefnd taldi besta. Segðu okkur þína skoðun!

0 hafa sagt sína skoðun

Segðu þína skoðun

Fyrst um sinn getur aðeins ritstjóri spjallsins stofnað til nýrrar umræðu í kerfinu. Félagsmenn, sem vilja koma af stað umræðu um tiltekið málefni, eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við ritstjórann á netfanginu omar@grgolf.is.

Styrktaraðilar GR

Þú ert hér: