Meistaramót GR 2012


16.01.2012
Grafarholt 2011

Meistaramót Golfklúbbs Reykjavíkur fer fram dagana 1.-7.júlí í sumar. Leikið verður á Grafarholtsvelli og á Korpúlfsstaðarvelli. Sunnudaginn 1.júlí til þriðjudagsins 3.júlí leika allir barna- og unglingaflokkar, allir öldungaflokkar, 3.flokkur karla og kvenna, 4.flokkur karla og 5.flokkur karla. Þessir flokkar leika 54 holur í mótinu.

Miðvikudaginn 4.júlí til laugardagsins 7.júlí leika 2.flokkur karla og kvenna, 1.flokkur karla og kvenna og Meistaraflokkur karla og kvenna. Þessir flokkar leika 72 holur. 

Allar nánari upplýsingar verða settar inná heimasíðu GR, www.grgolf.is undir Meistaramót GR vinstra megin á síðunni þegar nær dregur vori.

Þessar dagsetningar munu standa sem og leikdagar flokka. Meistaramót klúbbanna eru viku fyrr í ár en í fyrra og er ástæðan sú að undankeppni fyrir Evrópumót landsliða verður leikin á Hvaleyravelli aðra helgina í júlí þegar Meistaramótin fara venjulega fram.

Golfklúbbur Reykjavíkur

« Til baka

Styrktaraðilar GR

Þú ert hér: