Púttmótaröð karla fór vel af stað


23.01.2012
Púttkvöld karla 2012

Góð þátttaka að venju og því þröngt á þingi enda allar 18 holurnar á sömu hæð í fyrsta skipti, sem verður að teljast til bóta, því nú þarf ekki lengur að pútta í blessaða baukana og á mishröðum teppum á neðri hæðinni.


Til að forðast örtröð, dettur mér í hug að best bæri að hafa einhvers konar rástíma þar sem 10-12 lið mæti á hverjum klukkutíma, þeas. um 10 lið komi frá 18-18.30, næstu 10 frá 19-19.30 osfrv.


Næsta fimmtudag verð ég með rástímablöð þar sem liðin skrá sig. Einnig er hægt að senda mér á leturval@litrof.is væntanlegan komutíma ef menn eru nú þegar búnir að ákveða sig.


Hér að neðan er staða liða og einstaklinga eftir 1. umferð. Vonandi hefur allt komist rétt til skila í öllum látunum, sem fylgir alltaf fyrsta kvöldinu, en ef ekki þá endilega komið með leiðréttingu næsta fimmtudag eða senda mér póst.


Bestu kveðjur,
Halldór B. Kristjánsson
898 3795

« Til baka

Styrktaraðilar GR

Þú ert hér: