Topp mæting þrátt fyrir erfiða færð


27.01.2012
Púttkvöld karla

Það verður ekki annað sagt en að púttmótin fari vel af stað og búast má við harðri keppni. Efstu menn fyrri ára eru þegar komnir ofarlega en svo eru ný nöfn þar á meðal og ætla ekki að gefa neitt eftir og verður gaman að fylgjast með framhaldinu.


Rástíminn frá kl. 18 til 19:30 er greinilega vinsæll og þau lið sem ekki skráðu rástíma fyrir næsta fimmtudag er bent á að mæta um kl. 20 til 20.30 til að allt gangi snuðrulaust fyrir sig. Það er annars ótrúlegt hversu vel þetta gengur miðað við þann fjölda sem skráði sig til leiks.


Hér að neðan er staða liða og einstaklinga eftir 2. umferð.


Bestu kveðjur,
Halldór B. Kristjánsson
898 3795

« Til baka

Styrktaraðilar GR

Þú ert hér: