Fyrsta púttkvöld GR kvenna


19.01.2012
Korpa

Það var fín mæting á fyrsta púttkvöld GR kvenna í gær þrátt fyrir ófærð og landsleik í handbolta.
72 konur mættu til leiks og slógu rækilega í gegn.

Keppt var í tveimur hollum, það fyrra fór af stað uppúr 18.30 og hið síðara um kl.20

Enn eru 7 púttkvöld eftir, næstu miðvikudagskvöld og um að gera að mæta.
Skorið úr fjórum bestu kvöldunum telur og þann 9. mars krýnum við
Púttmeistara GR kvenna á glæsilegu skemmtikvöldi.

Smellið hér til þess að sjá stöðuna eftir fyrsta kvöldið.

Við hlökkum til að sjá ykkur að viku liðinni,

kær kveðja

kvennanefnd GR

Anna Lilja, Björk, Elín , Erla, Eygló, Eyrún, Halldóra, Lilja, Sandra og Stella María

« Til baka

Styrktaraðilar GR

Þú ert hér: