Nanna Björg á 29 höggum.


03.02.2012
Kvennakvöld9

Það voru 95 hressar konur sem mættu í púttið á miðvikudagskvöldið. Margar hverjar sýndu snilldartakta og voru nokkur frábær kort. Nanna Björg var t.d. á 29 höggum og Marólína á 30 höggum og nokkrar á 31 höggi sem er sannarlega glæsilegur árangur. 

Nú eru 2 kvöld að baki og 6 kvöld eftir og fleiri geta bæst í hópinn. Munið að það eru fjórir bestu hringirnir sem telja á endanum! 

Næst spilum við miðvikudaginn 8. febrúar og þá er markaðskvöld hjá okkur. Við vitum að það eru margar frábærar listakonur á meðal okkar og við hvetjum þær til að koma með hlutina sína og setja upp í matsalnum til að sýna okkur hinum. Endilega verið í sambandi í gegnum þetta netfang þær sem vilja vera með.  

Til að bæta upp kvöldið sem féll niður í síðustu viku hefur verið ákveðið að pútta mánudaginn 13.febrúar. Þá viku púttum við bæði á mánudegi og miðvikudegi. Þá verðum við komnar á rétt ról en síðasta púttkvöldið er 7.mars og svo Skemmtikvöldið þann 9. í Grafarholtinu þar sem við krýnum púttmeistara 2012.

Við viljum minna ykkur á að merkja skorkortin skýrt þannig að ekki sé vafamál hver eigi í hlut og bendum á, að gefnu tilefni, að ritari verður að kvitta fyrir svo kortið sé gilt. 

Meðfylgjandi er excel-skjal með stöðunni eftir þessar 2 umferðir, við hvetjum ykkur til að vera með í þessarri fínu skemmtun og æfingu, svo ekki sé talað um félagsskapinn:-)

Sjáumst nk. miðvikudag.

kveðja frá kvennanefndinni :)

« Til baka

Tengd skjöl

Pútt2 konur

Styrktaraðilar GR

Þú ert hér: