Biðin langa


17.02.2012
Pútt

Það er mál manna að umsjónarmaður hafi misst sig aðeins er hann setti upp völlinn fyrir 5. púttkvöldið og völlurinn verið of erfiður en skemmtilegur að mörgu leyti. Þó gekk gagnrýnin aðallega út á það hversu löng bið myndaðist við 8. holuna sem var í lengra lagi. Já, ég undirritaður játa að ég sá ekki fyrir þessa bið, sem varð er verst lét um tuttugu mínútur og það gengur ekki.


Skorið var því verra en oftast áður en það er huggun harmi gegn að henda verður út fjórum hringjum þegar upp er staðið.


Það er áberandi hversu menn eru mislengi/fljótir að spila. Til að flýta leik er góð regla að vera með sömu leikröð innan liðs allan hringinn burtséð frá skori. Það má svo breyta röðinni fyrir seinni hringinn, sem dæmi.  


Góð mæting að venju en leikmenn miskátir með umsjónarmanninn eins og gengur.


Hér að neðan er staða liða og einstaklinga eftir 5. umferð.


Bestu kveðjur,
Halldór B. Kristjánsson
leturval@litrof.is
898 3795

Mynd: Maðurinn með gullpútterinn spilaði manna best í gær. Ég sé um skorið Siggi minn en þú um kortið.

« Til baka

Styrktaraðilar GR

Þú ert hér: