Beint í leiðarkerfi vefsins.
Á aðalfundi Golfklúbbs Reykjavíkur 23. nóvember 2005, veitti Ellert B. Schram, forseti Íþróttasambands Íslands (ÍSÍ), félaginu gæðaviðurkenningu ÍSÍ vegna barna- - og unglingastarfs félagsins og um leið réttinn ti að kalla sig Fyrirmyndafélag ÍSÍ.
Ellert talaði um mikilvægi þess að golfklúbbar eins og GR gengu öðrum lengra í forvarnarstefnu sinni þar sem nálægðin við sölu og neyslu áfengis og tóbaks væri meiri en í öðrum íþróttum. Ellert hrósaði stjórn GR og starfsfólki þess fyrir vel unnin störf í þágu barna- og unglingastarfs og óskaði GR-ingum öllum til hamingju með þessa gæðaviðurkenningu.
Fyrirmyndafélag ÍSÍ er gæðaviðurkenning fyrir barna- og unglingastarf. Gæðaviðurkenningin felur í sér að Golfklúbbur Reykjavíkur hefur staðist þær gæðakröfur sem íþróttahreyfingin gerir. Til þess að standast slíkar gæðakröfur þarf íþróttafélag að sýna það í verki að hún geri raunhæfar kröfur um gæði og innihald þess starfs sem það vinnur.
