Mótaröð barna- & unglinga
Icelandair
Cargo -
mótaröð
Icelandair Cargo mótaröðin er ætluð meðlimum Golfklúbbs Reykjavíkur 18 ára og yngri, keppt er í 8 mismunandi flokkum og verður leikið á Korpúlfsstaðavelli á þriðjudagsmorgnum síðan sumarið 2018. Mótaröðin hefur reynst góður stökkpallur fyrir þau yngstu til þess að öðlast leik- og keppnisreynslu ásamt því að mikil spenna og stemning myndast í öllum flokkum.
Þátttaka og
leikfyrir-
komulag
Allir iðkendur Golfklúbbs Reykjavíkur, 18 ára og yngri, sem greiða félagsgjöld í klúbbinn og hafa öðlast löglega EGA forgjöf geta skráð sig til leiks. Það er því ákveðin hvatning fyrir þá sem hafa ekki fengið forgjöf að drífa í því til þess að geta tekið þátt í mótaröðinni.
Leikin eru 10 mót og af þeim gilda 6 bestu til verðlauna, leikin er punktakeppni svo að allir hafi jafna möguleika á að sigra. Gefin eru stig eftir árangri í hverju móti og í lok sumars verða stigameistarar hvers flokks krýndir ásamt því að sá keppandi sem hlýtur flest stigin hlýtur titilinn Icelandair Cargo Stigameistari GR. Verðlaun verða veitt á glæsilegu lokahófi sem haldið er í ágúst.
Keppendum er frjálst að taka þátt í eins mörgum mótum og þeir vilja. Skráning fer fram í gegnum Golfbox.
Vakni einhverjar spurningar er hægt að senda tölvupóst á berglind@grgolf.is
Allar tilkynningar varðandi mótin munu koma á facebook síðu barna og unglingastarfs GR, Golfklúbbur Reykjavíkur - Æfingar
Flokkar
17-18 ára kk. | Hvítir | 17-18 ára kvk | Hvítir |
15-16 ára kk. | Gulir | 15-16 ára kvk. | Bláir |
14 ára og yngri kk. | Rauðir/Bláir | 14 ára og yngri kvk. | Rauðir |
Fgj. 30,5 og hærra kk. | Gull (9) | Fgj. 30,5 og hærra kvk. | Gull (9) |
Leikdagar
2020
19. júní | 07. júlí (Meistaramót) |
23. júní | 14. júlí |
30. júní | 21. júlí |
05. júlí (Meistaramót) | 28. júlí |
06. júlí (Meistaramót) | 04. ágúst |
Við þökkum Icelandair Cargo kærlega fyrir að gera okkur kleift að halda þessa mótaröð og hlökkum til að sjá ykkur sem flest á vellinum í sumar.
Með kveðju,
Þjálfarar