Félagsjöld 2023 – innheimta og ráðstöfun greiðslufyrirkomulags

Golfklúbbur Reykjavíkur notast við XPS félagakerfi við skráningu og innheimtu félagsgjalda og geta félagsmenn skráð sig inn til að ráðstafa greiðslum á meðfylgjandi slóð https://xpsclubs.is/grgolf/registration – hafi greiðslufyrirkomulagi ekki verið ráðstafað fyrir 16. janúar næstkomandi mun ein krafa verða send í banka með gjalddaga í febrúar.

Áfram er boðið upp á það  greiðslufyrirkomulag sem hefur verið undanfarin ár – allt að 5 skipti með kröfum í banka eða allt að 10 skipti með dreifingu á greiðslukort. Greiðsludreifing á kreditkort ber með sér 3% þjónustugjald.

Kröfur sem sendar eru í heimabanka eru sendar frá Síminn Pay ehf. og birtast með tilvísun GRGOLFXXXXXXXXXX

ATH! Þurfi að gera breytingar á greiðslufyrirkomulagi eftir 16. janúar þarf að hafa samband við skrifstofu og er þá innheimt breytingargjald kr. 990.

Félagsgjöld ársins 2023 eru þessi: 
Félagsmenn 19-26 ára, kr. 70.000
Félagsmenn 27-71 árs, kr. 140.000
Félagsmenn 72 ára og eldri, kr. 120.000
Félagsmenn 75 ára og eldri*, kr. 90.000
*Enda hafi félagi verið í GR í a.m.k. 10 ár samfellt
Allir nýir félagar, 27 ára og eldri, greiða kr. 40.000 í nýliðagjald þegar gengið er í klúbbinn.

Vakni einhverjar spurningar er velkomið að hafa samband við skrifstofu klúbbsins alla virka daga frá kl. 09:00-16:00 í síma 5850200.

Golfklúbbur Reykjavíkur