Customize Consent Preferences

Þessi vefur nýtir sér vafrakökur (e. web cookies) til að bæta virkni hans og hjálpa stjórnendum vefsins að greina notkun hans.

Það er stefna Golfklúbbur Reykjavíkur að nota vafrakökur með ábyrgum hætti.

Allar persónuupplýsingar sem kunna að að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við persónuverndarlög.... 

Always Active

Necessary cookies are required to enable the basic features of this site, such as providing secure log-in or adjusting your consent preferences. These cookies do not store any personally identifiable data.

No cookies to display.

Functional cookies help perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collecting feedback, and other third-party features.

No cookies to display.

Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics such as the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.

No cookies to display.

Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.

No cookies to display.

Advertisement cookies are used to provide visitors with customized advertisements based on the pages you visited previously and to analyze the effectiveness of the ad campaigns.

No cookies to display.

Haraldur Franklín og Guðmundur Ágúst á Swiss Challenge í Frakklandi

Á morgun hefst keppni á Swiss Challenge mótinu sem er hluti af Áskorendamótaröðinni. Meðal keppenda eru þeir Haraldur Franklin Magnús og Guðmundur Ágúst Kristjánsson.

Haraldur Franklín endaði í 22. sæti á Opna portúgalska meistaramótinu sem leikið var um síðustu helgi á Royal Óbidos vellinum í Portúgal. Haraldur Franklín fór upp um 2 sæti á stigalista mótaraðarinnar og er nú í 86. sæti. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GKG, lék einnig á mótinu en hann komst ekki í gegnum niðurskurðinn og er Guðmundur Ágúst í 89. sæti á stigalistanum.

Swiss Challenge mótið verður leikið dagana 22.-25. september á Saint Apollinaire vellinum í Frakklandi. Það verður 16. mótið á þessu ári á Áskorendamótaröðinni hjá Haraldi Franklín.

Hér verður hægt að fylgjast með rástímum, skori og stöðu keppenda

Lokamót Áskorendamótaraðarinnar fer fram í byrjun nóvember á Mallorca. Haraldur Franklín og Guðmundur Ágúst eru í harðri baráttu um að komast í hóp 45 stigahæstu keppenda á Áskorendamótaröðinni – sem fá keppnisrétt á lokamótinu. Þar verður keppt um 20 sæti á sjálfri Evrópumótaröðinni.

Við sendum góðar kveðjur á strákana og óskum þeim góðs gengis á móti helgarinnar!

Golfklúbbur Reykjavíkur