Customize Consent Preferences

Þessi vefur nýtir sér vafrakökur (e. web cookies) til að bæta virkni hans og hjálpa stjórnendum vefsins að greina notkun hans.

Það er stefna Golfklúbbur Reykjavíkur að nota vafrakökur með ábyrgum hætti.

Allar persónuupplýsingar sem kunna að að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við persónuverndarlög.... 

Always Active

Necessary cookies are required to enable the basic features of this site, such as providing secure log-in or adjusting your consent preferences. These cookies do not store any personally identifiable data.

No cookies to display.

Functional cookies help perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collecting feedback, and other third-party features.

No cookies to display.

Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics such as the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.

No cookies to display.

Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.

No cookies to display.

Advertisement cookies are used to provide visitors with customized advertisements based on the pages you visited previously and to analyze the effectiveness of the ad campaigns.

No cookies to display.

Háttvísisbikarinn 2022 hlaut Perla Sól Sigurbrandsdóttir

Háttvísisbikarinn er gjöf frá GSÍ í tilefni af 70 ára afmæli GR og er hann veittur ár hvert þeim kylfingi undir 18 ára aldri sem endurspeglar hvað mest þá eiginleika sem GR-ingar vilja sjá í afreksunglingum sínum. Sá sem hlýtur háttvísibikarinn þarf að hafa mikinn íþróttaanda, gefast aldrei upp, sýna miklar framfarir, vera sér og klúbbnum til mikils sóma bæði innan vallar sem utan og umfram allt vera fyrirmynd fyrir aðra í kringum sig.

Perla Sól Sigurbrandsdóttir hlýtur viðurkenninguna í ár. Hún er búin að eiga alveg hreint magnað ár og er mikil og sterk fyrirmynd fyrir aðra iðkendur. Hún er mjög dugleg við æfingar og hefur sýnt  hörkuframfarir undanfarin ár.

Hvar skal byrja? Hún hóf sigurför sína þessa árs í lok ársins 2021 þegar hún sigraði á Orlando International. Í sumar sigraði hún svo á einu sterkasta unglingamóti Evrópu, European Young Masters, sem fór fram í Finnlandi. Sigur Perlu á þessu móti er sögulegur þar sem þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur kvenkylfingur sigrar á þessu móti.

Perla Sól sigraði á Íslandmóti í höggleik kvenna í fyrsta skipti á sínum ferli og má taka fram að Ólafía Þórunn atvinnukylfingur var í 2. sæti. Perla Sól var stigameistari 2022 á unglingamótaröð GSÍ í flokki 15-16 ára stúlkna. Hún tók þátt í fjórum af alls fimm mótum mótaraðarinnar og sigraði í öll fjögur skiptin. Hún var Íslandsmeistari í höggleik 15-16 ára og er þetta fimmta árið í röð sem Perla Sól sigrar á Íslandsmótinu í höggleik í sínum aldursflokki.

Perla var valin og fagnaði sigri með úrvalsliði Evrópu sem keppti gegn úrvalsliði Bretlands og Írlands í Junior Vagliano liðakeppninni 2022. Mótið er árlegur viðburður þar sem að úrvalslið kvenna 16 ára og yngri keppir sín á milli, og aðeins kylfingar í fremstu röð á heimsvísu eru valdir í þetta mót. Einnig hefur hún verið valin í úrvalslið Evrópu gegn Asíu og mun það mót fara fram á næsta ári. Árið 2022 færði Perla Sól sig upp um 1340 sæti á heimslista áhugakylfinga. Perla er alltaf til fyrirmyndar, bæði innan vallar sem utan og er glæsilegur fulltrúi Golfklúbbs Reykjavíkur.

Þetta er í nítjánda skipti sem bikarinn er afhentur og þeir sem hafa áður fengið útnefninguna eru eftirfarandi kylfingar:

2004 Þórður Rafn Gissurarson
2005 Hanna Lilja Sigurðardóttir
2006 Guðni Fannar Carrico
2007 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
2008 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
2009 Andri Þór Björnsson
2010 Guðmundur Ágúst Kristjánsson
2011 Sunna Víðisdóttir
2012 Ragnhildur Kristinsdóttir
2013 Saga Traustadóttir
2014 Ingvar Andri Magnússon
2015 Gerður Hrönn Ragnarsdóttir
2016 Dagbjartur Sigurbrandsson
2017 Böðvar Bragi Pálsson
2018 Elvar Már Kristinsson
2019 Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir
2020 Tómas Eiríksson Hjaltested
2021 Helga Signý Pálsdóttir
2022 Perla Sól Sigurbrandsdóttir

Golfklúbbur Reykjavíkur óskar Perlu Sól til hamingju með Háttvísibikarinn 2022