ÍSLANDSMÓT GOLFKLÚBBA 2022 – 1. DEILD KARLA, RÁSTÍMAR, STAÐA OG ÚRSLIT

Íslandsmót golfklúbba 2022 í 1. deild karla fer fram dagana 21.-23. júlí og verður leikið á Hlíðavelli í Mosfellsbæ hjá GM og Korpúlfsstaðavelli hjá GR. Fyrst var keppt um Íslandsmeistaratitli golfklúbba árið 1961 og er mótið í ár það 62. í röðinni.

Alls eru 8 lið sem leika í efstu deild karla þar sem að keppt er um Íslandsmeistaratitil golfklúbba 2022 í efstu deild karla.

Fyrstu tvær umferðirnar í 1. deild karla, fimmtudaginn 21. júlí, verða leiknar á Hlíðavelli í Mosfellsbæ. Umferð 3 og undanúrslitin fara fram á Korpúlfsstaðavelli föstudaginn 22. júlí.

Úrslitin í 1. deild karla ráðast á Hlíðavelli laugardaginn 23. júlí.

Keppnisfyrirkomulagið er með hefðbundnum hætti.

Alls eru 8 lið sem leika í efstu deild karla.

Liðunum er skipt í tvo riðla, A og B.

Í A-RIÐLI ERU GR, GV, GA OG GKB.

A-riðill karla –smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit

Golfklúbbur Akureyrar: Lárus Ingi Antonsson, Heiðar Davíð Bragason, Valur Snær Guðmundsson, Eyþór Hrafnar Ketilsson, Tumi Hrafn Kúld, Örvar Samúelsson, Mikael Máni Sigurðsson og Óskar Páll Valsson.

Golfklúbbur Kiðjabergs: Halldór Heiðar Halldórsson, Arnar Snær Hákonarson, Pétur Freyr Pétursson, Andri Jón Sigurbjörnsson, Hjalti Steinar Sigurbjörnsson, Árni Freyr Sigurbjörnsson, Ólafur Sigurjónsson og Sturla Ómarsson.

Golfklúbbur Reykjavíkur: Andri Þór Björnsson, Sigurður Bjarki Blumenstein, Viktor Ingi Einarsson, Jóhannes Guðmundsson, Elvar Már Kristinsson, Hákon Örn Magnússon, Böðvar Bragi Pálsson og Dagbjartur Sigurbrandsson.

Golfklúbbur Vestmannaeyja: Örlygur Helgi Grímsson, Einar Gunnarsson, Karl Haraldsson, Hallgrímur Júlíusson, Rúnar Þór Karlsson, Lárus Garðar Long, Daníel Ingi Sigurjónsson og Sigurbergur Sveinsson.

 

Í B-RIÐLI ERU GKG, GOS, GM OG GS.

B-riðill karla – smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar: Breki Gunnarsson Arndal, Ragnar Már Garðarsson, Sigurður Arnar Garðarsson, Guðjón Frans Halldórsson, Hjalti Hlíðberg Jónasson, Aron Snær Júlíusson, Gunnlaugur Árni Sveinsson og Kristófer Orri Þórðarson.

Golfklúbbur Mosfellsbæjar: Kristján Þór Einarsson, Björn Óskar Guðjónsson, Andri Már Guðmundsson, Sverrir Haraldsson, Aron Ingi Hákonarson, Kristófer Karl Karlsson, Arnór Daði Rafnsson og Ingi Þór Ólafson.

Golfklúbbur Selfoss: Heiðar Snær Bjarnason, Aron Emil Gunnarsson, Hlynur Geir Hjartarson, Arnór Ingi Hlíðdal, Símon Levý Héðinsson, Pétur Sigurdór Pálsson og Andri Már Óskarsson.

Golfklúbbur Suðurnesja: Rúnar Óli Einarsson, Stefán Ragnar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, Pétur Þór Jaidee, Róbert Smári Jónsson, Björgvin Sigmundsson, Logi Sigurðsson og Sigurpáll Geir Sveinsson.

 

A-riðill                                                                                               B-riðill

GR – Golfklúbbur Reykjavíkur                                                   GKG – Golfklúbbur Kópavogs og

Garðabæjar

GV – Golfklúbbur Vestmannaeyja                                             GOS – Golfklúbbur Selfoss

GA – Golfklúbbur Akureyrar                                                      GM – Golfklúbbur Mosfellsbæjar

GKB – Golfklúbbur Kiðjabergs                                                   GS – Golfklúbbur Suðurnesja

 

Hvert lið leikur þrjá leiki í riðlakeppninni. Í hverri viðureign eru leiknir tveir fjórmenningsleikir og þrír tvímenningsleikir.

Tvö efstu liðin úr hvorum riðli komast í undanúrslit.

Efsta liðið í A-riðli leikur í undanúrslitum gegn liðin nr. 2 úr B-riðli.

Efsta liðið úr B-riðli leikur í undanúrslitum gegn liði nr. 2 úr A-riðli.

Neðsta liðið í 1. deild karla fellur í 2. deild.

Golfklúbbur Reykjavíkur hefur titil að verja í karlaflokk í efstu deild.

Fyrst var leikið á Íslandsmóti golfklúbba í karlaflokki árið 1961. Frá þeim tíma hafa 6 klúbbar fagnað þessum titli.

Golfklúbbur Reykjavíkur hefur sigrað oftast eða 25 sinnum, þar á eftir kemur Golfklúbburinn Keilir með 15 titla, Golfklúbbur Akureyrar er með 8 titla, Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar er með 7,
Golfklúbbur Suðurnesja 3), og Golfklúbbur Mosfellsbæjar er með 3 titla, þar af 2 þegar klúbburinn var Golfklúbburinn Kjölur.