Jólabingó eldri kylfinga haldið á föstudag

Föstudaginn 16. desember verður jólabingó eldri kylfinga haldið á Korpunni. Að venju hefst morguninn á því að pútta á efri hæðinni, að pútti loknu er svo kaffi á neðri hæðinni og bingó keyrt af stað í framhaldinu.

Bingó er liður í vetrarstarfi sem eldri kylfingar klúbbsins standa fyrir og hvetjum við alla félagsmenn sem náð hafa 60 ára aldri til að mæta og gera sér glaðan dag í góðum félagsskap fyrir jólin.

Karl Jóhannsson stýrir ferðinni en ásamt honum hafa þeir Kristján, Axel, Björn og Jónas umsjón með bingó viðburðum. Það eru ávallt flottir vinningar í boði og vel mætt á þennan viðburð sem að venju er haldinn mánaðarlega yfir vetrartímann. Í lokin er dregið úr bingóspjöldum og geta því allir átt von á vinning!

Þátttökugjald er kr. 500 og er dagskrá föstudagsins þessi:

Kl. 09:30 – Pútt
Kl. 10:00 – Kaffi
Kl. 10:30 – Bingó

ATH! Við byrjum hálftíma fyrr en venjulega.

Hlökkum til að sjá ykkur öll jóhohohohóóóólabingó!

Golfklúbbur Reykjavíkur