Korpa verður 3x 9 holu lykkjur frá og með 12. september – bókanir opna kl. 20:00 á sunnudag

Frá og með mánudeginum 12. september verður Korpan bókuð sem 3x 9 holu lykkjur – Korpa Áin, Korpa Landið og Korpa Sjórinn. Bókanir fyrir 12. september opnast kl. 20:00 næstkomandi sunnudag, 4. september.

Frá og með 12. september verður því enginn 18 holu völlur til bókunar á Korpu í Golfbox. Félagsmönnum er bent á að ef þeir ætla að leika 18 holur þurfa þeir að skrá sig aftur í rástíma á seinni 9 – lágmarkstími milli bókana verður 2 tímar og 10 mínútur.

September-kveðja,
Golfklúbbur Reykjavíkur