Kæru GR konur,
Kvennanefndin óskar eftir nýjum konum í stjórn fyrir sumarið 2023.
Markmið kvennanefndar er að fá konur í golfi til að kynnast, spila saman og taka þátt í mótum. Kvennanefndin stendur fyrir nokkrum mótum aðeins ætluð konum yfir árið, byrjum á púttmótaröð sem hefst miðvikudaginn 25. jan og endar á haustmóti sem haldið er í september.
Við erum opnar fyrir nýjum hugmyndum og tökum fagnandi á móti skemmtilegum konum með okkur í nefndina. Hvetjum sérstaklega konur sem langar að kynnast öðrum konum í golfi að taka þátt í starfinu.
Núverandi nefndarkonur eru:
Guðrún Íris Úlfarsdóttir | s: 8402892 | gudrunulfarsdottir@gmail.com |
Kristín Halla Hannesdóttir | s: 8442872 | kristinhal1972@gmail.com |
Aðalbjörg Ársælsdóttir | s: 8460424 | adalbjorg81@gmail.com |
Halldóra Jóhannsdóttir | s: 8974715 | halldorajohannsd@gmail.com |
Það má hafa samband við okku í síma, gegnum e-mail eða hitta á okkur á púttmótinu sem spilað er á miðvikudögum í Korpu.