Customize Consent Preferences

Þessi vefur nýtir sér vafrakökur (e. web cookies) til að bæta virkni hans og hjálpa stjórnendum vefsins að greina notkun hans.

Það er stefna Golfklúbbur Reykjavíkur að nota vafrakökur með ábyrgum hætti.

Allar persónuupplýsingar sem kunna að að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við persónuverndarlög.... 

Always Active

Necessary cookies are required to enable the basic features of this site, such as providing secure log-in or adjusting your consent preferences. These cookies do not store any personally identifiable data.

No cookies to display.

Functional cookies help perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collecting feedback, and other third-party features.

No cookies to display.

Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics such as the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.

No cookies to display.

Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.

No cookies to display.

Advertisement cookies are used to provide visitors with customized advertisements based on the pages you visited previously and to analyze the effectiveness of the ad campaigns.

No cookies to display.

Meistararmót: Lokahóf haldið á laugardag – húsið opnar kl. 18:00

Lokahóf & verðlaunaafhending Meistaramóts GR 2022 verður haldið á 2. hæð Korpunnar laugardagskvöldið 9. júlí. Allir þátttakendur í mótinu fá afhentan aðgöngumiða í lokahóf á síðasta keppnisdegi sem framvísa þarf hjá starfsfólki í veitingasölu þegar mætt er á laugardag.

Salurinn opnar kl. 18:00 og verður boðið upp á veitingar að hætti KH Klúbbhús, taka skal tillit til þess að salurinn verður tvísetinn og því ekki úr vegi að mæta snemma og fylgjast með keppendum í meistaraflokk ljúka leik, live-skor verður birt á skjá á báðum hæðum hússins. Á meðan beðið er eftir að keppendur ljúki leik ætlar Gunnar á Völlum að hafa ofan af fyrir matargestum.

Verðlaunaafhending er áætluð um kl. 21:00. Þegar klúbbmeistarar GR 2022 hafa verið krýndir mun DJ slá taktinn og halda stemmningunni frameftir kvöldi á Korpuloftinu..

Fyrir þá sem ekki taka þátt í mótinu en vilja mæta í Lokahóf –  borða og gleðjast með okkur á laugardag þá er hægt að kaupa miða í veitingasölu Korpu og er verðið kr. 5.400.

Nokkur atriði:

  • 20 ára aldurstakmark er á svæðið
  • Ekki þarf að skrá sig sérstaklega í Lokahóf
  • Mikilvægt er að muna eftir aðgangsmiða

Hlökkum til að gleðjast með ykkur á laugardag!
Golfklúbbur Reykjavíkur