Ráðstöfun félagsgjalda 2023

Fjárhagsáætlun klúbbsins var kynnt og samþykkt af félagsmönnum á aðalfundi sem haldinn var þriðjudaginn 6. desember og verða félagsgjöld í klúbbinn þessi á komandi ári:

Félagsmenn 19-26 ára, kr. 70.000
Félagsmenn 27-71 árs, kr. 140.000
Félagsmenn 72 ára og eldri, kr. 120.000
Félagsmenn 75 ára og eldri*, kr. 90.000
*Enda hafi félagi verið í GR í a.m.k. 10 ár samfellt

Ákveðið var að allir nýir félagar, 27 ára og eldri, muni greiða kr. 40.000 í nýliðagjald þegar gengið er í klúbbinn.

Innheimta og ráðstöfun greiðslna fer aðeins seinna af stað þetta árið vegna nýs félagakerfis sem tekið hefur verð í notkun. Félagsgjöld hafa nú verið lögð á og geta félagsmenn skráð sig hér inn https://xpsclubs.is/grgolf/registration til að ráðstafa greiðslum.

Áfram er boðið upp á greiðsludreifingu líkt og undanfarin ár. Hægt er að skipta greiðslum í allt að 5 skipti með kröfu í banka eða allt að 10 skipti með dreifingu á greiðslukort, greiðsludreifing á kreditkort ber með sér 3% þjónustugjald. Sé greiðsludreifingu á kreditkort ráðstafað fyrir 6. janúar næstkomandi er þjónustugjald ekki innheimt.

Athugið að ef félagsmaður ráðstafar ekki greiðslu fyrir 16. janúar næstkomandi verður send út ein krafa í banka með gjalddaga 2. febrúar. Kröfur sem sendar eru í heimabanka eru sendar frá Síminn Pay ehf. og birtast með tilvísun GRGOLFXXXXXXXXXX

Þurfi að gera breytingar á greiðslufyrirkomulagi eftir 16. janúar þarf að hafa samband við skrifstofu og er þá innheimt breytingargjald kr. 990.

XPS greiðslukerfi – innskráning
Til þess að skrá sig inn í greiðslukerfi þurfa félagsmenn eingöngu að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum og er það gert með því að smella á hnapp efst á síðunni eins og sjá má á mynd hér:

Skrifstofa klúbbsins er lokuð á milli jóla og nýárs en hægt er að senda tölvupóst á harpa@grgolf.is eða dora@grgolf.is vakni einhverjar spurningar. Skrifstofa opnar aftur mánudaginn 2. janúar.

Golfklúbbur Reykjavíkur