Samantekt frá aðalfundi GR 2022 – Gísli Guðni Hall endurkjörinn formaður

Aðalfundur Golfklúbbs Reykjavíkur var haldinn á Korpúlfsstöðum þriðjudaginn 6. desember og var þátttaka góð.  Formaður félagsins, Gísli Guðni Hall, gerði grein fyrir skýrslu formanns um störf stjórnar á árinu.  Harpa Ægisdóttir, fjármálastjóri kynnti ársreikning félagsins og fór yfir fjárhagsáætlun komandi starfsárs. Fundarstjóri var Ólafur Arinbjörn Sigurðsson.

Gísli Guðni bauð sig fram til áframhaldandi formennsku og þakkaði fundarmönnum traust sem honum hefur verið sýnt.  Sitjandi stjórnamenn, Brynjar Jóhannesson, Kristín Eysteinsdóttir og Ólafur William Hand, buðu sig fram til áframhaldandi stjórnarsetu en engin ný framboð komu fram.  Þau voru þannig sjálfkjörin í aðalstjórn til næstu tveggja ára. Fyrir sátu í aðalstjórn Elín Sveinsdóttir, Guðmundur Arason og Margeir Vilhjálmsson sem kjörin voru til tveggja ára á aðalfundi 2021. Í varastjórn gáfu kost á sér Arnór Ingi Finnbjörnsson, Helga Friðriksdóttir og Þórey Jónsdóttir og er stjórn og varastjórn þannig fullskipuð.

Rekstur starfsársins 2021-2022 gekk vel og var námu tekjur alls 583 milljónum króna og rekstrarafgangur 66 milljónum króna. Heildareignir félagsins nema 1,438 milljörðum króna og er eiginfjárstaða sem og lausafjárstaða sterk. Á rekstarárinu störfuðu 15 heilsársstarfsmenn hjá klúbbnum auk 59 sumarstarfsmanna. Að öðru leyti vísar stjórn klúbbsins til ársreiknings um rekstur og fjárhagsstöðu og skýrslu stjórnar sem sjá má hér fyrir neðan.

Golfklúbbur Reykjavíkur annast rekstur 18 holur golfvallar og 6 holu æfingavallar í Grafarholti ásamt rekstri 27 holu golfvallar og 9 holu æfingavallar á Korpúlfsstöðum. Ennfremur rekur klúbburinn æfingaaðstöðu Bása í Grafarholti auk inniæfinga- og félagsaðstöðu á Korpúlfsstöðum.

Á starfsárinu fóru af stað miklar framkvæmdir á vallarsvæðum félagsins, má þar nefna 1. teig og 18. braut Grafarholts, endurbætur á Grafarkotsvelli sem og á Korpúlfsstöðum.  Gólfefni voru endurnýjuð í Básum og eru enn frekari endurbætur á aðstöðu Bása fyrirhugaðar á næstu vikum, eins og nánar var kynnt.

Fjárhagsáætlun GR 2023 var samþykkt á aðalfundi og mun félagsgjöld hækka eins og sjá má í gjaldskrá hér fyrir neðan. Auk þess verður tekið upp nýliðagjald, kr. 40.000, fyrir alla sem ganga í klúbbinn 27 ára og eldri.

Gjaldskrá fyrir komandi tímabil verður eftirfarandi:
Félagsmenn 19-26 ára, kr. 70.000
Félagsmenn 27-71 ára, kr. 140.000
Félagsmenn 72 og eldri, kr. 120.000
Félagsmenn 75 ára og eldri*, kr. 90.000
*enda hafi félagi verið í GR í a.m.k. 10 ár samfellt

Leiknir hringir á árinu voru 108.036 samanborið við 114.012 árinu á undan og fækkaði þeim á milli ára. Til að auka framboð rástíma var ákveðið var að fara í 8 mínútur á milli rástíma auk 8 daga bókunarfyrirvara. Leiknir hringir á vinavöllum voru töluvert færri í ár, 4.713 samanborið við 6.180 árið á undan.  Kynjahlutfall er 35% konur og 65% karla, sem er bæting frá fyrra ári.

Golfklúbbur Reykjavíkur þakkar Árna Tómassyni og Guðmundi Frímannssyni, endurskoðendum, fyrir sína vinnu og kjörnefnd fyrir sitt starf.  Sérstakar þakkir færum við Ólafi Arinbirni fyrir faglega og góða fundarstjórn og félagsmönnum fyrir sína þátttöku.

Stjórn, framkvæmdarstjóri og starfsfólk klúbbsins þakkar félagsmönnum fyrir gott starfsár

Ársreikningur GR 2022
Skýrsla stjórnar 2022