Sjötti vinavöllurinn er Hólmsvöllur í Leiru

Sjötti vinavöllur GR á komandi tímabili er Hólmsvöllur í Leiru hjá Golfklúbbi Suðurnesja. Klúbbarnir hafa verið í vinavallasamstarfi um árabil og hafa félagsmenn klúbbsins verið duglegir að nýta sér þennan vinavallakost.

Hólmsvelli svipar að mörgu leyti til breskra strandvalla. Náttúruöflin eru hluti af leiknum og þeirri upplifun sem honum fylgir. Leiran er þekkt fyrir krefjandi upphafsholur, þá einna helst þriðju brautina – Bergvíkina – þar sem aðeins þeir hörðustu þora að slá beint á flöt, yfir öldurótið sem lætur kröftuglega í sér heyra. Reynir þar verulega á einbeitingu þess sem slær.

Bóki félagsmenn GR sjálfir rástíma í gegnum Golfbox eru greiddar kr. 4.000 fyrir hvern leikinn hring og er bókunarfyrirvari tveir dagar. Sé rástími bókaður umfram bókunarfyrirvara eða í gegnum skrifstofu GS greiða félagsmenn GR kr. 4.500 fyrir hvern leikinn hring. Áður en leikur hefst skulu félagar staðfesta félagsaðild í afgreiðslu og ganga frá greiðslu vallargjalds. Samkomulagið gildir ekki ef félagsmenn leika með hópum sem gert hafa sérstaka samninga um afslætti, sbr. fyrirtækjamót.

Vefsíða GS

Samantekt og upplýsingar um alla vinavelli félagsins er að finna hér 

Við fögnum áframhaldandi samstarfi við Golfklúbb Suðurnesja sem opnaði inn á sumarflatir frá og með deginum í dag, 20. apríl.

Óskum ykkur gleðilegs sumars!

Golfklúbbur Reykjavíkur