Jæja stelpur,
Þá er komið að sumarmótaröð GR kvenna árið 2022. Í ár verða spilaðir 6 hringir og telja 3 bestu hringirnir til Sumarmeistara GR kvenna 2022.
Sumarmótaröðin er punktakeppni og verða veitt verðlaun fyrir 3 efstu sætin. Einnig verða nándarverðlaun á völdum brautum.
Spiladagar eru eftirfarandi:
· 30 maí - Holtið
· 13 júní - Korpa
· 20 júní - Holtið
· 27 júní - Korpa
· 11 júlí - Holtið
· 18 júlí - Korpa – lokahóf
Konur geta valið sér og skráð sig í rástíma allan mótsdag allt frá því völlur opnar og fram á kvöld. Þar sem mótaröðin hefur ekki frátekna rástíma er nóg að einhver í hollinu sé ritari staðfesti skorið, viðkomandi þarf að vera með forgjöf. Leikmaður þarf að segja frá því að hún sé að taka þátt í golfmóti og óski eftir því að einhver í hollinu sé staðfesti skorið, ekki er nauðsynlegt að aðilinn sé þátttakandi í mótinu. Ritari og leikmaður fara yfir skorið til staðfestingar. Skila skal svo kortinu með nafni og kennitölu/meðlimanúmeri í kassa í klúbbhúsi og verður skorið skráð og birt á golfboxinu daginn eftir mót.
Mótsgjald fyrir alla sex hringina er kr. 5.000 og greiðist inn á reikning nr. 0370-22-045208 kt 230781-3899 (Guðrún Íris).
Fyrsta mót sumarsins er sem fyrr segir næsta mánudag 30.maí á Holtinu.
Hlökkum til að sjá ykkur
Kvennanefnd GR