Þriðji vinavöllurinn er á norðurlandi – Hlíðarendavöllur

Þriðji vinavallasamningur ársins 2022 er við Hlíðarendavöll hjá Golfklúbbi Skagafjarðar (GSS) sem staðsettur er á Sauðárkróki. Þetta er þriðja árið í röð sem klúbbarnir gera með sér vinavallasamning.

Golfklúbbur Skagafjarðar var stofnaður árið 1970 og fær Hlíðarendavöllur einróma lof þeirra sem hann sækja. Völlurinn er 9 holur og par 72 miðað við 18 holur. Völlurinn er staðsettur ofan við Sauðárkrók og í göngufæri frá miðbæ.  Útsýnið yfir fagran Skagafjörðinn er einstakt.  Í golfskálanum eru seldar veitingar og hægt að kaupa eitthvað af golfvörum í verslun. Við völlinn er einnig að finna mjög stórt æfingasvæði þar sem staðsett eru fjarlægðarskilti og hægt að fá bolta keypta til æfinga.

Allar upplýsingar um GSS er að finna á vefsíðu klúbbsins www.gss.is og þar meðal annars hægt að sjá  dróna video af brautum vallarins.

Sömu reglur gilda á Hlíðarendavelli eins og á öðrum vinavöllum, félagsmenn Golfklúbbs Reykjavíkur greiða kr. 3.500 í vallargjald í hvert sinn er þeir leika Hliðarendavöll og skiptir þá ekki máli hvort leiknar séu 9 eða 18 holur. Áður en leikur hefst skulu félagar staðfesta félagsaðild sína og greiða vallargjald í afgreiðslu. Samkomulagið gildir ekki ef félagsmenn leika með hópum, sem gert hafa sérstaka samninga um afslætti af vallargjöldum, eins og t.d fyrirtækjamót.

Það von okkar að félagsmenn séu ánægðir með þennan áframhaldandi vinavallakost á norðurlandi og nýti sér það að spila í Skagafirðinum í sumar.

Allar upplýsingar um vinavelli félagsins er að finna hér á síðunni undir „Golfvellir – Vinavellir“

Golflklúbbur Reykjavíkur