Meistaramót GR 2022 hefst á sunnudag – rástímar birtir á Golfbox

Meistaramót GR 2022 hefst á sunnudag og hafa rástímar sunnudagsins nú verið birtir í mótaskrá á Golfbox,  ræst verður út frá kl. 08:00 á báðum völlum, Grafarholtsvelli og Korpúlfsstaðavelli.

Í Grafarholti hefja allir barna- og unglingaflokkar leik ásamt 3.fl. kvenna, 4.fl. karla og kvenna og 5.fl. karla og allir 70 ára og eldri. Rástíma fyrir þessa flokka er að finna undir „Meistaramót GR 2022 – 3 dagar Holtið-Korpa-Korpa“

Á Korpu hefja leik 3.fl. karla og 50 ára og eldri forgjafarflokkar 10,5-20,4 og 20,5-54 í 50+ karlar og forgjafarflokkar 16,5-26,4 og 26,5-54 í 50+ kvenna. Rástíma fyrir þessa flokka er að finna undir „Meistaramót GR 2022 – 3 dagar Korpa-Holtið-Holtið“

Upplýsingar um skor og stöðu í mótinu verður hægt að sjá inni í mótinu á Golfbox.

Í meistaramótsviku munu klúbbhús félagsins opna hálftíma fyrir fyrsta rástíma.

Golfæfingasvæði Bása verður opið frá kl. 06-22 sunnudag til föstudags og verður boðið upp á fría upphitunarbolta alla mótsdaga

Allar helstu upplýsingar er hægt að finna hér á vefnum undir Félagsstarf – Meistaramót

Góða skemmtun og gangi ykkur vel!
Golfklúbbur Reykjavíkur