Inniæfinga-
aðstaða
Inniæfingaaðstaðan okkar á 2. hæð Korpunnar er opin félagsmönnum yfir vetrarmánuðina. Aðstaðan er opin alla virka daga og um helgar frá kl. 08:00-22:00
Æfingar barna-, unglinga- og afreksstarfsins eiga fasta tíma og þá er aðstaðan lokuð fyrir félagsmenn.
Korpúlfar, sem er félagsstarf eldri borgara í Grafarvogi pútta hjá okkur á fimmtudagsmorgnum yfir veturinn og er það orðin fastur liður í þeirra starfi.
Eftir áramótin fara svo púttmótaraðir af stað en þær eru þónokkrar. Þar má nefna Ecco mótaröð karla og kvenna, ásamt púttmótaröð barna-, unglinga- og afreksstarfsins.
Félagsmenn athugið - komi til þess að æfingar barna-, unglinga- og afreksstarfs færist til fyrirvaralaust þá ganga æfingar fyrir með afnot af inniæfingaaðstöðunni.


