Golfleikjaskóli GR
Golfleikjaskóli GR eru námskeið sem starfrækt eru yfir sumartímann og eru hugsuð fyrir öll börn og unglinga á aldrinum 6-16 ára sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni og langar til að læra að leika golf.
Námskeiðin fara fram á æfingasvæði GR í Grafarholti – Básum. Öllum er heimilt að taka þátt hvort sem viðkomandi er félagi í golfklúbbi eða ekki. Hægt er að fá lánaðan allan útbúnað í skólanum á skólatíma. Markmið skólans er að fyrstu kynni af íþróttinni eru jákvæð þar sem grunnatriði leiksins eru höfð að leiðarljósi ásamt því að hafa gaman í skemmtilegum hópi.
Farið er í helstu þætti golfleiksins, allt frá púttum til upphafshögga gjarnarn í formi þrauta og leikja. Að auki er kennt og prófað að leika nokkrar golfbrautir á golfvelli og áhrelsa er á að kynna helstu golfsiði og golfreglur fyrir nemendum.
Eftir að hafa lokið námskeiði stíga krakkarnir mörg hver inn í starfið hjá klúbbnum og fara að stunda reglubundnar æfingar allt árið um kring.
Markmið
Grunngildi
Af hverju gæti golfið verið sniðug íþrótt fyrir barnið þitt? Að skemmtuninni frátalinni teljum við golfíþróttina geta kennt barni þínu nokkur af mikilvægustu grunngildunum sem að skila sér beint í lífstíl þeirra til frambúðar. Markmiðið okkar er að kenna eftirfarandi gildi:
Tæknimarkmið
Grunntækni í járnahöggum og trékylfum, púttum og vippum. Mesta áherslan verður lögð á gripið, boltastöðuna, rétta uppstillingu og grunnhreyfingar sveiflnanna.
Í námskeiðinu okkar munum við fara yfir helstu kurteisisreglur og börnin munu læra að taka tillit til annarra og trufla ekki eða tala á meðan aðrir eru að slá.
Innihald námskeiða
Innifalið í Golfleikjaskóla GR :
- Aðgangur að Grafarkotsvelli sumarið 2026
- Aðgangur að Thorsvelli sumarið 2026
- Boltakort í Básum
- Gjaldfrjáls aðgangur að almennum æfingum í tvær vikur í beinu framhaldi af námskeiði
- Viðurkenningarskjal í lok námskeiðs
- Pizzaveisla á síðasta degi hvers námskeiðs
Verð pr. fjögurra daga námskeið
kr. 22.890.-
Verð pr. fimm daga námskeið
28.690.-
Námskeið í boði
Golfleikjaskóli 2026 verður í boði á þessum dagsetningum í sumar :
| Námskeið 1 | 15. - 19. júní (4 dagar) |
| Námskeið 2 | 29. júní - 3. júlí (5 dagar) |
| Námskeið 3 | 20. - 23. júlí (4 dagar) |
| Námskeið 4 | 27. - 31. júlí (5 dagar) |
| Námskeið 5 | 4. - 7. ágúst (4 dagar) |
| Námskeið 6 | 10. - 13. ágúst (4 dagar) |
| Námskeið 7 | 17. - 21. ágúst (5 dagar) |
Dagskrá:
Námskeiðin hefjast klukkan 9:00 alla morgna og standa til klukkan 12:00. Kennsla fer fram í Grafarholti (Básum). Þátttakendur eru beðnir um að koma klædd eftir veðri og hafa með aukafatnað, viðbúin öllu. Einnig er æskilegt að hafa með sér hollt nesti og drykk.
Skipulag:
Hér fyrir neðan má sjá dæmigerðan dag í Golfleikjaskóla GR, með fyrirvara um breytingar.
| kl. 9:00 – 9:10 | Tekið á móti nemendum, lesið upp og skipt í hópa fyrir daginn. |
|---|---|
| kl. 9:10 – 9:50 | Hópavinna – þema 1 |
| kl. 9:50 – 10:20 | Hópavinna – þema 2 |
| kl. 10:20 – 10:40 | Nesti |
| kl. 10:40 – 11:10 | Hópavinna – þema 3 |
| kl. 11:10 – 11:45 | Hópavinna – þema 4 |
| kl. 11:45 – 12:00 | Leikir, frágangur og nemendur kvaddir í lok dags |
Starfsemenn Golfleikjaskóla GR eru keppnis- og meistaraflokkskylfingar hjá Golfklúbbi Reykjavíkur á aldrinum 15-25 ára. Allir starfsmenn skólans hafa fengið fræðslu, þjálfun og kennslu með skipulag fyrir Golfleikjaskólann.
Yfirumsjón með Golfleikjaskólanum hefur Páll Birkir, rekstrarstjóri íþróttastarfs GR og hægt er að senda honum tölvupóst á netfangið pallbirkir@grgolf.is

