MEISTARAMÓT GR
Meistaramót Golfklúbbs Reykjavíkur er án efa stærsti viðburður hvers árs í mótahaldi hjá klúbbnum. Mótið, sem yfirleitt er haldið í byrjun júlí, stendur yfir í 7 daga þar sem keppt er í öllum flokkum. Þátttakendur hafa verið allt frá 400-600 og er því mikið um að vera á vellinum á mótsdögum. Meistaramóti lýkur með lokahófi og verðlaunaafhendingu á laugardegi þar sem félagsmenn koma saman og gleðjast yfir góðum árangri.
* Golfklúbbur Reykjavíkur áskilur sér rétt til að breyta upplýsingum án fyrirvara.
MEISTARAMÓT GR 2026
Meistaramót Golfklúbbs Reykjavíkur 2026 fer fram dagana 5. – 11. júlí.
Eins og undanfarin ár verður leikið verður á Grafarholtsvelli og á Korpúlfsstaðarvelli, Sjórinn/Áin.
Allar upplýsingar um Meistaramót GR 2026 verða settar hér inn þegar nær dregur.
* Höggleiksafbrigði – hámarks höggafjöldi á hverja holu eru 10 högg, þegar leikmaður er búin með 10 högg á holu er boltinn tekinn upp og skrifað 10 högg á viðkomandi holu.
MÓTSSTJÓRN
Mótsstjóri:
Harpa Ægisdóttir – harpa@grgolf.is
Mótsstjórn – 3 daga mót
Ómar Örn Friðriksson, Nicholas Cathcart Jones, Sigríður Guðmundsdóttir
Mótsstjórn – 4 daga mót
Ómar Örn Friðriksson, Nicholas Cathcart Jones, Sigríður Guðmundsdóttir, Atli Þór Þorvaldsson
ÁÆTLAÐIR RÁSTÍMAR
KEPPNISSKILMÁLAR
Keppnisskilmála, hegðunarreglur og leikhraðareglur fyrir Meistarmót GR 2026 má finna hér.
Keppnisskilmálar Meistaramót 2026
STAÐARREGLUR
Staðarreglur á völlum félagsins má sjá hér:
Staðarreglur - Meistaramót 2026 - Korpa
Staðarreglur - Meistaramót 2026 - Grafarholt
Viðbótarstaðarreglur - Meistaramót 2026 - Grafarholt
Grafarholtsvöllur
Leiktímatafla per holu - Meistarmót 2026 - Grafarholt
Korpúlfsstaðavöllur

