75+ landsliðið hafnaði í 4. sæti í Austurríki
Íslenska 75+ landsliðið stóð sig með mikilli prýði á móti sem fram fór í Burgauberg-Neudauberg í Austurríki.
Það tóku 20 þjóðir þátt í mótinu.
Íslanska liðið hafnaði í 4. sæti í betri bolta með forgjöf og í 12. sæti án forgjafar. Spennan var mikil allt fram á síðasta keppnisdag, en þá var íslenska liðið í baráttu um sjálft 1. sætið. Aðstæður reyndu verulega á keppendur, enda fór hitinn yfir 35 gráður á lokadeginum - ekki alveg hitastigið sem við Íslendingar venjumst hér heima.
Liðið skipuðu þeir:
Axel Alfreðsson
Gunnsteinn Skúlason
Hans Óskar Iseban
Helgi Hólm
Þórhallur Sigurðsson
Liðsstjóri íslenska liðsins var Sigurjón Árni Ólafsson.
Helgi, sem er 85 ára, var jafnframt næstelsti keppandi mótsins!
Við óskum þeim öllum innilega til hamingju með frábæran árangur og glæsilega frammistöðu í Austurríki!
Recent Posts












