Hola í höggi, albatross og fjórir íslenskir á meðal tuttugu efstu í Þýskalandi
Fjórir íslenskir kylfingar eru á meðal 20 efstu eftir tvo hringi á fyrsta stigi úrtökumóta fyrir DP World Tour. Aron Snær Júlíusson, Dagbjartur Sigurbrandsson og Ragnar Már Garðarsson eru jafnir í 11. sæti en Sigurður Arnar Garðarsson er jafn í 16. sæti.
Mótið fer fram á Golf-und Country Club Seddiner See í Þýskalandi og verða leiknir fjórir hringir. Alls eru átta íslenskir kylfingar meðal 82 keppenda, en einungis efstu nítján komast áfram á næsta stig.
Ragnar átti besta hring Íslendinganna á öðrum keppnisdegi þegar hann lék á 67 höggum, fimm höggum undir pari. Hann er, ásamt Dagbjarti og Aroni á fjórum höggum undir pari í mótinu. Aron Snær náði þeim magnaða árangri að fá albatross á þrettándu holu vallarins á öðrum hring. Hann lék par fimm holuna því á tveimur höggum eða þremur undir pari.
Sigurður Arnar er höggi á eftir þremeningunum og hefur leikið hringina tvo á 71 og 70 höggum. Á fyrsta hring mótsins fékk Sigurður holu í höggi á sautjándu braut vallarins. Magnað afrek.
Staða íslensku kylfinganna eftir tvo hringi
- T11. Aron Snær Júlíusson, 69-71 (-4)
- T11. Dagbjartur Sigurbrandsson, 71-69 (-4)
- T11. Ragnar Már Garðarsson, 73-67 (-4)
- T16. Sigurður Arnar Garðarsson, 71-70 (-3)
- T47. Jóhann Frank Halldórsson, 72-74 (+2)
- T47. Logi Sigurðsson, 74-72 (+2)
- T57. Hlynur Bergsson, 76-72 (+4)
- T60. Tómas Eiríksson Hjaltested, 75-74 (+5)
Þjóðverjinn Martin Gründemann er í forystu á tíu höggum undir pari, einu höggi á undan Taylor Paul frá Englandi.
Recent Posts











