Mercedes-Banz bikarinn verður nú seinnipartinn á sunnudögum
Mercedes-Benz bikarinn er styrktur af bílaumboðinu Öskju og leggur til frítt árgjald á næsta ári fyrir sigurvegarann. Annað sætið gefur hálft árgjald.
Um er að ræða holukeppni með forgjöf þar sem leiknar eru 18 holur. Um bikarkeppni er að ræða þannig að keppendum fækkar um helming í hverri umferð.
Tveir leikir eru leiknir saman í holli.
Fyrsta umferðin verður leikinn sunnudaginn 21. júní. Það er gert ráð fyrir allt að 64 keppendum í þeirri umferð og það verða þá 32 sem mæta til leiks sunnudaginn 28. Júní.
Fyrsti ráshópurinn byrjar kl. 16:04 og ræst verður út til 18:12. Í annari umferð er ræst út frá 16:04 – 17:04 en þá eru 8 holl, tveir holukeppnisleikir í holli og 32 keppendur.
Sextán manna úrslit verða eftir meistaramót og mótinu lýkur í ágúst.
Recent Posts










