FootJoy bikarinn fer af stað enn eitt árið
Opið er fyrir skráningu í mótaskrá GR á golfbox.
Skráning í FootJoy bikarinn 2026
Þessi skemmtilega keppni er leikinn í 6 manna liðum þar sem tveir leikmenn úr hvoru liði leika betri bolta og fjórir leikmenn úr hvoru liði leika holukeppnisleiki. Allir leikirnir eru leiknar á Korpu 9 holur.
Í hverjum leik keppa 6 leikmenn fyrir hvort lið, en í mótinu má nota 12 leikmenn. Leikið er á virkum dögum og hefjast leikir ýmist kl. 18:20 eða 18:52. Við skráningu eru liðin beðin að tiltaka hvaða vikudagar henta í þessa keppni, en margir hópar í GR leika á sínum föstu leikdögum.
Fimmtudags riðillinn hefur keppni 18. júní. Síðan er leikið á virkum dögum næstu tvær vikur, einn leikur í viku hjá hverju liði. Riðla keppni líkur í vikunni eftir meistaramótið.
Átta lið komast áfram í úrslitakeppni sem leikin er í ágúst.
Mótsgjald fyrir hvert lið er 10.000 kr.
Mótinu líkur með úrslitaleik þar sem liðin sem leika til úrslita fá veislumáltið að leik loknum. Allir leikmenn beggja liða fá FJ pólóboli og sigurliðið tekur við liðameistara bikarnum.
ISAM og FootJoy eru styrktaraðilar FJ bikarsins.
Recent Posts









