Ragnhildur endaði jöfn í ellefta sæti

Sigríður GR Golf • 9. júní 2026

Share this article

Arkea Montauban Ladies Open mótinu á LET Access mótaröðinni lauk í dag. Mótið var það þriðja á LET Access mótaröðinni í sumar, en þar keppti Ragnhildur Kristinsdóttir ásamt þeim Hulda Clöru Gestsdóttur og Andreu Bergsdóttur.


Hér má sjá úrslit mótsins


Ragnhildur Kristinsdóttir endaði jöfn í ellefta sæti mótsins á einu höggi undir pari ásamt Andreu Bergsdóttur.


Ragnhildur lék hringi mótsins á 73, 69 og 73 höggum. Hún hefur byrjað tímabilið af krafti og náð í gegnum niðurskurð í öllum þremur mótunum. Fyrir mótið var Ragnhildur fjórða á stigalista mótaraðarinnar og heldur hún því sæti sínu sem einn af efstu kylfingum listans. Hringi Ragnhildar má sjá í myndasafninu hér fyrir neðan.


Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf 24. júlí 2026
Golfklúbbur Reykjavíkur hefur þann heiður að halda Íslandsmótið í golfi 2026 í góðu samstarfi við Golfsamband Íslands. Og við þurfum á þinni hjálp að halda! Mótið fer fram dagana 6.–9. ágúst á Korpu þar sem leikið verður á völlunum Sjórinn og Áin. Markmið okkar er að skapa glæsilega umgjörð fyrir bæði keppendur og áhorfendur og gera Íslandsmótið að eftirminnilegum viðburði. Til þess þurfum við á öflugum hópi sjálfboðaliða að halda og leitum því til félagsmanna Golfklúbbs Reykjavíkur eftir aðstoð. Hlutverk sjálfboðaliða - við leitum meðal annars að sjálfboðaliðum í eftirtalin verkefni: Framverði og gæslu áhorfenda. Bílastæðavörslu / Leiðaraaðstoð Bera sand í kylfuför (kvöldvinna) Önnur fjölbreytt verkefni sem tengjast framkvæmd mótsins. Aðbúnaður sjálfboðaliða Allir sjálfboðaliðar fá vinnufatnað frá 66°Norður meðan á mótinu stendur. Einnig verður sérstök aðstaða fyrir sjálfboðaliða á 2. hæð í Korpu þar sem boðið verður upp á veitingar og góða hvíldaraðstöðu á milli verkefna. Vaktir - boðið verður upp á þrjár vaktir á hverjum keppnisdegi: Morgunvakt: kl. 7:00–11:00 Miðdagsvakt: kl. 10:30–16:00 Síðdegisvakt: kl. 15:30–20:30 Við vonum innilega að sem flestir félagsmenn Golfklúbbs Reykjavíkur sjái sér fært að leggja hönd á plóg og taka þátt í þessu stóra verkefni. Það er bæði ánægjulegt og gefandi að taka þátt í mótahaldi sem þessu, kynnast öðrum félagsmönnum og leggja sitt af mörkum til að gera Íslandsmótið að glæsilegri upplifun fyrir alla. Skráðu þig sem sjálfboðaliða og vertu hluti af einu stærsta golfmóti ársins. Við hlökkum til að starfa með þér! Taktu þátt!
Eftir Sigríður GR Golf 24. júlí 2026
Kæru kylfingar Vegna mikillar rigningar og vætu undanfarna daga eru vellir félagsins ennþá mjög votir. Í ljósi þess hafa vallarstjórar tekið ákvörðun um að leyfa ekki golfbíla á völlum félagsins um helgina. Kveðja, Vallarsvið.
Eftir Sigríður GR Golf 23. júlí 2026
Kæru kylfingar Vegna mikillar rigningar síðustu daga eru vellir félagsins ennþá vel blautir. Í ljósi þess hafa vallarstjórar tekið ákvörðun um að leyfa ekki golfbíla á völlum félagsins á morgun föstudag. Tekin verður ákvörðun um umferð golfbíla dag frá degi á meðan völlurinn er að drena sig. Kveðja, Vallarsvið. 
Eftir Sigríður GR Golf 23. júlí 2026
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar heldur Lexus bikarinn á GSÍ mótaröðinni dagana 23.-25. júlí. Mótið er sjötta mótið á GSÍ mótaröðinni á þessu tímabili og það síðasta fyrir Íslandsmótið í golfi. Smelltu hér fyrir stöðu, rástíma og úrslit. Í karlaflokki eru 54 kylfingar skráðir til leiks. Golfklúbbur Reykjavíkur og Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar senda flesta kylfinga í mótið, en 13 kylfingar koma úr hvorum klúbbnum. Fimm forgjafarlægstu kylfingarnir eru allir með +3,9 eða lægra. Hér má sjá lista yfir þá. Logi Sigurðsson, Golfklúbbi Suðurnesja +5,5 Daníel Ísak Steinarsson, Golfklúbbnum Keili +4,9 Axel Bóasson, Golfklúbbnum Keili +4,8 Aron Snær Júlíusson, Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar +4,6 Aron Emil Gunnarsson, Golfklúbbi Selfoss +3,9 Í kvennaflokki mæta 16 kylfingar til leiks frá níu golfklúbbum. GKG á flesta keppendur, alls fjóra. Fimm forgjafarlægstu kylfingarnir eru allir með +0,3 eða lægra. Hér má sjá lista yfir þá. Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Golfklúbbi Reykjavíkur +1,6 Karen Lind Stefánsdóttir, Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar +1,6 Fjóla Margrét Viðarsdóttir, Golfklúbbi Suðurnesja +1,6 Andrea Ýr Ásmundsdóttir, Golfklúbbi Akureyrar +1,3 Guðrún Birna Snæþórsdóttir, Golfklúbbnum Keili 0,3  Mikilvæg stig á stigalista GSÍ Mótið er sjötta mót ársins á GSÍ mótaröðinni. Línurnar eru farnar að skýrast og stigin á síðustu tveimur mótunum gífurlega dýrmæt. Aron Snær Júlíusson og Perla Sól Sigurbrandsdóttir hafa leitt listana frá fyrsta móti og eru í góðri stöðu. Það verður spennandi að fylgjast með hvernig mótið þróast um helgina og hvaða áhrif það mun hafa á stigalistana. Hér má sjá stöðu á stigalistum karla og kvenna .
Eftir Sigríður GR Golf 23. júlí 2026
Íslandsmót unglinga í holukeppni 2026 fer fram á Svarfhólsvelli á Selfossi dagana 23.-25. júlí. Keppt verður um Íslandsmeistaratitla í átta aldursflokkum, allt frá 12 ára og yngri upp í 17–18 ára. Hér má sjá rástíma, stöðu og úrslit mótsins Keppt er í eftirtöldum flokkum: Stúlknaflokkur 12 ára og yngri, hámarksforgjöf 40,0 – rauðir teigar Stelpnaflokkur 13-14 ára, hámarksforgjöf 32,0 – rauðir teigar Stúlknaflokkur 15-16 ára, hámarksforgjöf 20,0 – bláir teigar Stúlknaflokkur 17-18 ára, hámarksforgjöf 15,0 – bláir teigar Drengjaflokkur 12 ára og yngri, hámarksforgjöf 40,0 – rauðir teigar Drengjaflokkur 13-14 ára, hámarksforgjöf 32,0 – bláir teigar Drengjaflokkur 15-16 ára, hámarksforgjöf 20,0 – gulir teigar Drengjaflokkur 17-18 ára, hámarksforgjöf 15,0 – hvítir teigar Leiknar verða 14 holur í öllum flokkum og ræðst fyrirkomulag mótsins af aldri keppenda. Í flokkum 12 ára og yngri og 13-14 ára hefst keppnin á höggleik án forgjafar. Átta efstu kylfingarnir í hverjum flokki komast áfram í holukeppni, þar sem leikið verður til úrslita. Hér má sjá úrslit höggleiksins Í flokkum 15-16 ára og 17-18 ára verður leikin útsláttarkeppni án forgjafar. Allt að 16 kylfingar hefja leik í hverjum flokki og verður þeim raðað upp eftir stöðu á stigamótaröð unglinga. Stigahæsti keppandinn mætir þeim stigalægsta og svo koll af kolli. Verði átta eða færri skráðir í flokki hefst keppnin beint í átta manna úrslitum. Hér má finna alla keppnisskilmála mótsins
Eftir Sigríður GR Golf 22. júlí 2026
Kæru kylfingar Vegna mikillar rigningar síðustu daga og þá sérstaklega í dag þá hafa vallarstjórar tekið ákvörðun um að leyfa ekki golfbíla á völlum félagsins á morgun fimmtudag. Tekin verður ákvörðun um umferð golfbíla fyrir föstudaginn, seinnipartinn á morgun. Kveðja, Vallarsvið.
Eftir Sigríður GR Golf 21. júlí 2026
Kæru félagsmenn, nú styttist óðfluga í að GR haldi stærsta golfmót ársins að Korpúlfsstöðum og er undirbúningur í fullum gangi. Því miður missa félagsmenn Korpúlfsstaði þá vikuna, en það gleður okkur að tilkynna að við munum opna nýja teiga og flöt á 3. braut í Grafarholti ásamt nýjum teigum á 4. braut þriðjudaginn 4.ágúst og vonum við að það mælist vel fyrir. Verði áfram mikil vætutíð eða láti svæðin mikið á sjá þá gætum við þurft að endurskoða, en við vonum það besta ! Samhliða þessu þá tilkynnist hér með opnun nýrra 63. teiga á Korpu, á brautum 2, 4, 9, 11 og 14, frá og með komandi föstudegi 24.júlí (síðdegis). Þessir teigar verða notaðir í komandi Íslandsmóti og nú getur okkar besta fólk farið að æfa sig á nýjum teigum, sem margir hverjir setja sterkan svip á völlinn. Golfkveðja, Vallarsvið
Eftir Sigríður GR Golf 21. júlí 2026
Unglingamótaröðin heimsótti Jaðarsvöll á Akureyri um helgina, þar sem ungir og efnilegir kylfingar léku við frábærar aðstæður. Tæplega 80 kylfingar mættu til leiks í mótið og var mikið líf á svæðinu. Leikinn var 54 holu höggleikur án forgjafar í flokki 15-18 ára drengja og stúlkna. Einnig voru veitt verðlaun fyrir bestan árangur í flokki 15-16 ára og 17-18 ára. Í stúlknaflokki stóð Embla Hrönn Hallsdóttir, GKG, uppi sem sigurvegari, en hún lék hringina þrjá á 77, 69 og 74 höggum og lauk leik á sjö höggum yfir pari. Embla leiddi með fjórum höggum fyrir lokahringinn og bætti við forskotið með flottum lokahring. Bryndís Eva Ágústsdóttir, GA, varð önnur á þrettán höggum yfir pari og Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir, GR, varð þriðja á fjórtán höggum yfir pari. Ásdís fékk flest pör allra kylfinga mótsins, alls 35 á hringjunum þremur. Bryndís kom næst á eftir með 33 pör. Embla sótti högg sín á par 3 og par 5 holum Jaðarsvallar, en hún var með besta meðalskor flokksins á þeim báðum. Kristín María Valsdóttir, GK, lék á besta skori 15-16 ára stúlkna, en hún lauk leik á 30 höggum yfir pari eftir hringi upp á 80, 81 og 82 högg. Kristján Karl Guðjónsson, GM, vann piltaflokkinn á einu höggi undir pari. Hann léki hringi sína á 68, 75 og 69 höggum og leiddi frá fyrsta hring. Þetta er þriðji sigur Kristjáns í fjórum mótum, en hann hefur leikið öll fjögur mótin undir pari. Gunnar Þór Heimisson og Arnar Daði Svavarsson, báðir GKG, deildu öðru sætinu á sex höggum yfir pari. Heimamennirnir Ágúst Már Þorvaldsson og Egill Örn Jónsson voru jafnir í fyrsta sæti 15-16 ára pilta á tíu höggum yfir pari. Þeir léku bráðabana um sigurinn þar sem Ágúst hafði betur. Hér má sjá úrslit mótsins í heild sinni Myndasíða Unglingamótaraðarinnar 2026 Myndasíða Golf14 2026 Myndasíða GSÍ mótaraðarinnar 2026
Eftir Sigríður GR Golf 20. júlí 2026
Axel Bóasson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir stóðu uppi sem sigurvegarar á heimavelli þegar Hvaleyrarbikarnum lauk á Hvaleyrarvelli í dag. Guðrún Brá vann kvennaflokkinn með sex högga mun en Axel tryggði sér sigur gegn Sigurði Bjarka Blumenstein á annarri holu bráðabana. Axel hafði betur í bráðabana Axel og Sigurður léku báðir lokahringinn á 69 höggum, þremur undir pari, og áttu bestu hringi dagsins. Sigurður Bjarki lék hringina þrjá á 70, 75 og 69 höggum en Axel á 73, 72 og 69 höggum. Þeir luku því báðir leik á 214 höggum, tveimur höggum undir pari. Þeir léku 15. holu Hvaleyrarvallar í bráðabananum. Báðir fengu par þegar holan var leikin í fyrra skiptið og þurftu því að leika hana aftur. Í seinna skiptið fékk Axel par en Sigurður Bjarki missti parpútt sitt. Axel tryggði sér með því sigur í Hvaleyrarbikarnum. Axel fékk 42 pör, sjö fugla og fimm skolla í mótinu, en enginn kylfingur paraði fleiri holur en heimamaðurinn. Böðvar Bragi Pálsson var einnig í baráttu um sigurinn fram á síðustu holu. Hann þurfti fugl á 18. holu til að komast í bráðabanann en fékk par og lauk leik á einu höggi undir pari. Böðvar varð því þriðji, höggi á eftir Axel og Sigurði Bjarka. Tómas Eiríksson Hjaltested lék lokahringinn á 70 höggum og varð fjórði á pari. Aron Emil Gunnarsson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Aron Snær Júlíusson urðu jafnir í fimmta sæti á tveimur höggum yfir pari. Guðrún Brá leiddi frá fyrsta hring Guðrún Brá hóf lokahringinn með fimm högga forskot og var sigur hennar aldrei í hættu. Hún lék lokahringinn á 75 höggum, þremur yfir pari, og lauk mótinu á 220 höggum, fjórum höggum yfir pari. Guðrún Brá vann með sex högga mun eftir hringi upp á 73, 72 og 75 högg. Stöðugleiki einkenndi spilamennsku Guðrúnar í mótinu. Hún fékk 40 pör á holunum 54, auk fimm fugla og níu skolla. Hún fékk engann tvöfaldan skolla í öllu mótinu. Perla Sól Sigurbrandsdóttir átti besta hring dagsins í kvennaflokki. Hún lék á 73 höggum, einu yfir pari, og fór upp um tvö sæti. Perla varð jöfn Elsu Maren Steinarsdóttur í öðru sæti á tíu höggum yfir pari. Perla fékk jafnframt flesta fugla í kvennaflokki í mótinu, eða átta. Heiða Rakel Rafnsdóttir og Þóra Sigríður Sveinsdóttir urðu jafnar í fjórða sæti á 17 höggum yfir pari. Alls 446 fuglar og níu ernir Keppendur fengu samtals 446 fugla og níu erni í mótinu. Sjöunda hola Hvaleyrarvallar reyndist léttust og var leikin að meðaltali á 0,34 höggum undir pari. Tólfta holan var erfiðust og var leikin á 0,83 höggum yfir pari að meðaltali. Róbert Leó Arnórsson og Breki Gunnarsson Arndal fengu flesta fugla í karlaflokki, tólf hvor. Sigurður Bjarki var skammt undan með ellefu fugla og einn örn. Þessi tölfræði var sótt af skemmtilegri og nýrri upplýsingasíðu mótsins. Óskum öllum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn og þökkum Golfklúbbnum Keili fyrir frábært mót
Eftir Sigríður GR Golf 20. júlí 2026
Kæru kylfingar Vegna mikillar rigningar síðustu daga og þá næstu hafa vallarstjórar tekið ákvörðun um að leyfa ekki golfbíla á völlum félagsins í á morgun (þriðjudag) og á miðvikudaginn. Tekin verður ákvörðun með seinnpart vikunnar þegar nær dregur og það tilkynnt. Kveðja, Vallarsvið.
Show More