Hvaleyrarbikarinn - úrslit ráðast í dag
Það er aldeilis búin að vera barátta á toppnum í Hvaleyrarbikarnum!
Aron Snær lék annan hringinn á 70 höggum, tveimur undir pari, og er samtals á fjórum höggum undir pari. Hann hefur leikið báða hringi mótsins á 70 höggum og leiðir með einu höggi.
Böðvar Bragi Pálsson er einn í öðru sæti á þremur höggum undir pari eftir hringi upp á 71 og 70 högg. Böðvar hefur sýnt mikinn stöðugleika og aðeins fengið tvo skolla á hringjunum tveimur. Hann hefur fengið 29 pör og fimm fugla.
Jóhannes Guðmundsson, ríkjandi meistari Hvaleyrarbikarsins, er í þriðja sæti á einu höggi undir pari. Hann lék annan hringinn á pari.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir leiðir kvennaflokkinn á einu höggi yfir pari.
Elsa Maren Steinarsdóttir lék annan hringinn á 74 höggum og færðist upp um tvö sæti. Hún er ein í öðru sæti á sex höggum yfir pari. Þóra Sigríður Sveinsdóttir er í þriðja sæti á átta höggum yfir pari og Perla Sól Sigurbrandsdóttir í því fjórða á níu höggum yfir pari.
Ný og skemmtileg upplýsingasíða mótsins hefur reynst áhorfendum vel. Þar má finna öll helstu skor, tölfræði og upplýsingar frá mótinu.
Keppendur hafa samtals fengið 325 fugla og sjö erni eftir fyrstu tvo hringina. Sjöunda hola Hvaleyrarvallar hefur reynst gjöfulust og verið leikin að meðaltali á 0,34 höggum undir pari. Tólfta holan hefur verið erfiðust og verið leikin á 0,86 höggum yfir pari að meðaltali.
Hægt er að fylgjast með stöðunni og ítarlegri tölfræði í beinni á mótasíðu Hvaleyrarbikarsins.
Recent Posts











