Glæsilegur árangur Jóns Karlssonar á Andalucian Senior Open 2026
Fimm íslenskir kylfingar tóku þátt The Andalucian Senior Open 2026 sem fram fór á Fairplay Golf & Spa Resort á Spáni dagana 20.–22. nóvember. Meðal keppenda var Jón Karlsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur (GR), sem náði frábærum árangri og hafnaði í 2.–3. sæti í atvinnumannaflokki. Í atvinnumannaflokki sigraði Svíinn Rickard Hassel á samtals 145 höggum, einu höggi undir pari (-1). Í atvinnumannaflokki sigraði Svíinn Rickard Hassel á samtals 145 höggum, einu höggi undir pari (-1).
Jón Karlsson lék samtals á þremur höggum yfir pari (+3) og tryggði sér þar með verðlaunasæti í sterku alþjóðlegu móti. Fyrir árangurinn hlaut hann 136 þúsund krónur í verðlaunafé. Þetta er góður árangur hjá Jóni og góð kynning fyrir íslenskt golf á alþjóðlegum vettvangi.
Árni Páll Hansson tók einnig þátt í atvinnumannaflokki og lauk keppni í 9. sæti á níu höggum yfir pari (+9). Aðrir íslenskir keppendur voru Halldór Ingólfsson, Hörður Hinrik Arnarson og Ásgeir Guðbjartsson.
Mótið var haldið í þriðja sinn og tóku kylfingar frá fjölmörgum löndum þátt. Keppnin hófst með 18 holu Betri bolta keppni en í kjölfarið tók við 36 holu höggleikur þar sem keppt var um efstu sætin.
Það er ánægjulegt að sjá íslenska kylfinga taka þátt í alþjóðlegum öldungamótum af þessu tagi.
Mikil gróska hefur verið í 50+ golfi í Evrópu og þátttaka íslenskra kylfinga í slíkum mótum er mikilvægur þáttur í að efla reynslu, tengsl og samkeppni á þessum vettvangi.
Nánari upplýsingar og úrslit:
https://seniorgolftoureurope.com/tournaments/andalucian-senior-open-2026
Recent Posts












