Aðalfundur GR 2026 - verður haldinn fimmtudaginn 3. desember
Aðalfundur GR verður haldinn á 2. hæð Korpu fimmtudaginn 3. desember og hefst stundvíslega kl. 18:00. Á fundinum fara fram hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt 18. grein laga félagsins.
Dagskrá:
1. Skýrsla formanns.
2. Kynning á endurskoðuðum ársreikningi félagsins.
3. Umræður um skýrslu formanns og ársreikning sem síðan skal borinn upp til samþykktar.
4. Umræður og atkvæðagreiðsla framkominna tillagna skv. 19. gr. ef einhverjar eru.
5. Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga.
6. Kynning á fjárhagsáætlun komandi starfsárs, umræður og atkvæðagreiðsla.
7. Kosning stjórnar og varamanna í stjórn.
8. Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara.
9. Önnur málefni ef einhver eru.
Samkvæmt 10. grein laga félagsins fer fram stjórnarkjör á aðalfundi þar sem formaður skal kosinn til eins árs, þrír aðalmenn í stjórn til tveggja ára og þrír varamenn í stjórn til eins árs. Þeir félagsmenn sem vilja gefa kost á sér til stjórnarsetu skulu senda framboð sín til kjörnefndar á netfangið kjornefnd@grgolf.is í síðasta lagi viku fyrir aðalfund eða ekki seinna en þann 26. nóvember næstkomandi. Taka skal fram hvort framboðið sé til formanns, aðalstjórnar eða varastjórnar.
Ef framboð til stjórnarsetu eru fleiri en þau sæti sem kjósa á um skal kjörnefnd hafa umsjón með kosningu milli frambjóðenda á aðalfundi og sjá til þess að framboð séu kynnt félagsmönnum fyrir aðalfund. Samkvæmt lögum félagsins skal gætt að því að í stjórn sitji að lágmarki þriðjungur einstaklinga af hvoru kyni.
Lagabreytingartillögur, lagðar fyrir aðalfund 2026:
Textabreytingar eru auðkenndar með undirstrikun.
1. grein orðist svo:
Félagið heitir Golfklúbbur Reykjavíkur (GR). Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. GR er aðili að Íþróttabandalagi Reykjavíkur (ÍBR) og Golfsambandi Íslands (GSÍ).
GR er starfrækt sem félag til almannaheilla samkvæmt lögum nr. 110/2021 um félög til almannaheilla. Þar sem ákvæði laga þessara segja ekki til um hvernig með skuli farið skal hlíta ákvæðum laga nr. 110/2021, svo og öðrum lagaákvæðum sem við geta átt.
Athugasemd:
Undirstrikaði textinn er viðbót við núverandi ákvæði. Tilgangur með breytingunni er að GR verði almannaheillafélag og uppfylli til þess skilyrði skv. lögum nr. 110/2021.
3. grein orðist svo:
Félagar geta allir orðið sem hafa áhuga á að styðja tilgang félagsins og óska aðildar með skriflegri umsókn, enda samþykki stjórn umsókn á fundi sínum.
Þar sem aðstaða til golfleiks er takmörkuð skal stjórn ákveða hámarksfjölda félagsmanna hverju sinni, sem nýtur heimildar til golfleiks og æfinga á völlum og æfingasvæðum félagsins. Æski fleiri félagsaðildar en nemur hinum ákveðna hámarksfjölda skal setja umsækjendur á biðskrá. Umsækjendur á biðskrá eiga val um hvort þeir verði félagar í GR þá þegar og greiði þá fullt árgjald og inntökugjald, sbr. 5. gr., eða hvort þeir standi utan félagsins þar til röð kemur að þeim samkvæmt biðskránni.
Stjórn skal setja og birta reglur um biðskrá. Aukaaðild að klúbbnum geta fengið ungmenni 17 ára og yngri. Aukaaðild fylgir takmarkaður réttur til leiks á golfvöllum félagsins samkvæmt reglum sem stjórnin setur. Stjórn getur ákveðið hámarksfjölda aukafélaga miðað við þá aðstöðu sem félagið getur boðið hverju sinni.
Athugasemd:
Undirstrikaði textinn felur í sér breytingu á núgildandi 1. málslið 2. mgr. 3. gr. sem er svohljóðandi:
Stjórn skal ákveða hámarksfjölda félagsmanna hverju sinni miðað við þá aðstöðu til golfleiks sem félagið getur boðið hverju sinni. Æski fleiri félagsaðildar en unnt er að verða við skal setja umsækjendur á biðskrá.
Með breytingunni er komið til móts við tilmæli Íþróttasambands Íslands frá því fyrr á árinu, þar sem bent var á að samkvæmt lögum ÍSÍ skuli félagsaðild ávallt vera öllum frjáls sem gangast undir lög og reglur viðkomandi félags. Ekki sé heimilt að gera aðrar takmarkanir á þátttöku í félagsstarfi en þær sem ytri aðstæður, s.s. þjálfunaraðstæður, leyfa og þurfi lög og reglur einstakra félaga að vera í samræmi við það. Í samræmi við þetta er lögð til sú breyting að félagsaðild verði öllum frjáls, en eftir sem áður sé heimilt að setja takmörkun á hámarksfjölda þeirra sem njóta heimildar til golfleiks á völlum og æfingasvæðum félagsins. Umsækjendur umfram þann hámarksfjölda skuli setja á biðskrá.
21. grein orðist svo:
Komi fram tillaga um að félaginu skuli slitið skal hún tekin fyrir á sérstökum fundi sem stjórnin boðar til með sama hætti og aðalfund. Fundurinn er ályktunarhæfur ef minnst helmingur félagsmanna sækir fundinn og tillagan fær gildi ef 2/3 fundarmanna samþykkja hana. Mæti ekki nægilega margir skal boða til fundar á ný og halda hann innan þriggja vikna. Sá fundur er ályktunarhæfur án tillits til fundarsóknar og fær tillagan gildi ef 2/3 fundarmanna samþykkja hana. Hrein eign við slit félagsins skal renna til ÍBR til eflingar á golf- og íþróttastarfi í Reykjavík í samráði við Reykjavíkurborg. Með öllu er óheimilt að úthluta eignum eða fjármunum félagsins til félagsmanna eða annarra einstaklinga við félagsslit.
Athugasemd:
Undirstrikaði textinn er viðbót við núverandi ákvæði og er vegna krafna laganna um félög til almannaheilla. Samkvæmt þeim ber að tilgreina í lögum eða samþykktum félags hvað verði um hreina eign við slit félags.
Stjórn
Recent Posts











