Nýir teigar og ný flöt
Kæru félagsmenn,
nú styttist óðfluga í að GR haldi stærsta golfmót ársins að Korpúlfsstöðum og er undirbúningur í fullum gangi. Því miður missa félagsmenn Korpúlfsstaði þá vikuna, en það gleður okkur að tilkynna að við munum opna nýja teiga og flöt á 3. braut í Grafarholti ásamt nýjum teigum á 4. braut þriðjudaginn 4.ágúst og vonum við að það mælist vel fyrir. Verði áfram mikil vætutíð eða láti svæðin mikið á sjá þá gætum við þurft að endurskoða, en við vonum það besta !
Samhliða þessu þá tilkynnist hér með opnun nýrra 63. teiga á Korpu, á brautum 2, 4, 9, 11 og 14, frá og með komandi föstudegi 24.júlí (síðdegis). Þessir teigar verða notaðir í komandi Íslandsmóti og nú getur okkar besta fólk farið að æfa sig á nýjum teigum, sem margir hverjir setja sterkan svip á völlinn.
Golfkveðja,
Vallarsvið
Recent Posts










