Eftir Sigríður GR Golf
•
26. október 2026
Golfklúbbur Reykjavíkur hafnaði í áttunda sæti á Evrópumóti golfklúbba í karlaflokki (European Men’s Club Trophy) sem lauk á Cabot Bordeaux golfsvæðinu í Frakklandi í dag. Lið GR lék hringina þrjá á samtals 440 höggum, 14 höggum yfir pari, en alls tóku 23 lið þátt í mótinu. Lið GR skipuðu Jóhann Frank Halldórsson, Böðvar Bragi Pálsson og Arnór Tjörvi Þórsson. Í mótinu voru leiknar 54 holur á þremur dögum og töldu tvö bestu skor liðsins á hverjum keppnisdegi. GR lék fyrsta hringinn á 147 höggum, fimm yfir pari. Á öðrum degi lék liðið á 144 höggum, tveimur yfir pari, og deildi fimmta sætinu fyrir lokahringinn. Á lokahringnum lék GR á 149 höggum, sjö yfir pari, og féll niður í áttunda sæti. Jóhann Frank Halldórsson lék best GR-inga á lokahringnum, en hann kom í hús á 74 höggum, þremur yfir pari. Hann lék fyrri níu holurnar á 41 höggi en seinni níu holurnar á 33 höggum, tveimur undir pari. Böðvar Bragi Pálsson lék lokahringinn á 75 höggum, fjórum yfir pari, en Arnór Tjörvi Þórsson kom í hús á 79 höggum, átta yfir pari. Böðvar Bragi átti besta hring GR í mótinu á öðrum keppnisdegi. Þá lék hann á 70 höggum, einu höggi undir pari. Arnór Tjörvi lék sömuleiðis vel á fyrsta keppnisdegi þegar hann kom í hús á 72 höggum. Heildarskor kylfinganna þriggja voru eftirfarandi: Böðvar Bragi Pálsson: 77-70-75, +9 Jóhann Frank Halldórsson: 75-75-74, +11 Arnór Tjörvi Þórsson: 72-74-79, +12 GR tryggði sér þátttökurétt á Evrópumótinu með sigri á Íslandsmóti golfklúbba í 1. deild karla sem fram fór á Strandarvelli á Hellu í ágúst. Þar sigraði GR lið GKG í úrslitaleik, 5–0, og varð Íslandsmeistari annað árið í röð og í 27. skipti í sögu félagsins. GR hafnaði í sjötta sæti á Evrópumótinu í fyrra en liðið hefur nú lokið keppni á meðal átta efstu liða mótsins annað árið í röð. Hér má sjá úrslit mótsins