Félagsferð eldri kylfinga GR til Penina í Portúgal
Okkur er mikil ánægja að bjóða eldri kylfingum Golfklúbbi Reykjavíkur golfferð til Penina í Portúgal næsta vor eða frá 30. apríl til 10. maí 2027 í 10 nætur. Flogið verður til og frá Faro í beinu flugi með Icelandair. Brottför er þann 30. apríl kl. 11:00 og lent í Faro kl. 16:30. Flugtími heim þann 10. maí er frá Faro kl. 17:30 og lent í Keflavík kl. 21:05. Aksturinn frá flugvelli til Penina er um 50 mín.
Penina er staðsett í vestur hluta Algarve héraðs skammt frá borginni Portimao. Aðrir líflegir bæir í næsta nágrenni við Penina eru Lagos, Lagoa og strandbærinn Carvoeiro. Penina er heimsþekkt Golfresort staðsett í yndislegri náttúru. Við hótelið eru 2 golfvellir. Keppnisvöllurinn Sir Henry Cotton 18 holur og Resort 9 holu völlur. Á staðnum er glæsilegt æfingasvæði ásamt púttflöt, vipp flöt, sandglompur og flöt til að slá inná. Á hótelinu eru 4 veitingarstaðir og 4 barir. Á kvöldin er róterað á milli veitingarstaða. https://www.icelandair.com/is-is/pakkaferdir/penina/
Verð:
409.900 kr. á mann í tvíbýli
461.600 kr í einbýli
Innifalið:
- Beint flug til og frá Faro með Icelandair
- Innrituð taska (23 kg) og golfsett (23 kg)
- Akstur milli flugvallar og hótels
- Gisting með hálfu fæði ásamt drykkjum með kvöldmat
- *Ótakmarkað golf á Henry Cotton Championship velli með golfbíl
- Íslensk fararstjórn
*Ótakmarkað golf: farþegar okkar geta spilað ótakmarkað golf sér að kostnaðarlausu alla spiladagana. Fastir rástímar okkar eru alla morgna og viðbótar golf er ekki hægt að panta fyrirfram og er háð umferð á vellinum daglega.
Bókunarleiðbeiningar:
- Til að bóka smellið hér: https://www.icelandair.com/is-is/flug/hopabokun/stadfesta-oggreida/ beðið er um hópanúmer, notið númer: 1756 - Bókunarkerfið leiðir ykkur áfram og þið fyllið inn í þá reiti sem óskað er eftir. Þegar bókun er gerð þarf að greiða staðfestingargjald kr. 40,000. Lokagreiðsla er 6 vikum fyrir brottför.
- Hægt er að nota Vildarpunkta Icelandair sem borgun í þessa ferð. Einnig er hægt að nota öll Icelandair gjafabréf og inneignir.
- Eingöngu er hægt að nota eitt kortanúmer í staðfestingargjald fyrir hverja bókun (þegar bókað er á netinu)
Ef eitthvað er óljóst er hægt að hafa samband við okkur á skrifstofu - golf@vita.is eða í síma 570-4457
Recent Posts











