Vetur konungur minnir á sig - lokanir fyrirhugaðar

Sigríður GR Golf • 21. október 2026

Share this article

Kæru kylfingar,


vetur konungur er farinn að minna á sig með kulda og næturfrosti og því óhjákvæmilegt að huga að lokun valla og æfingasvæða fyrir veturinn. Frá og með deginum í dag og fram að lokun verða vellir félagsins eingöngu opnir fyrir félagsmenn GR.


Grafarholtsvöllur mun loka fyrir veturinn frá og með laugardeginum 24. október.


Á Korpúlfsstaðavelli verða lykkjurnar Sjórinn og Landið opnar eitthvað áfram, svo lengi sem veður og vallaraðstæður leyfa. Áin hefur eins og áður hefur verið tilkynnt lokað og þakkað fyrir sumarið. Vipp- og púttæfingasvæði í skeifunni við Korpúlfsstaði verður einnig opið eitthvað áfram ⛳


Við minnum einnig á að öll salerni við báða velli hafa nú þegar lokað.


Grafarkotsvöllur hefur nú þegar lokað fyrir veturinn, ásamt vipp- og púttæfingasvæðinu fyrir utan Bása. Þá hefur púttæfingasvæðinu (nýja púttgrínið) við Korpúlfsstaði einnig lokað.


Básar eru opnir samkvæmt vetraropnun og hvetjum við félagsmenn að nýta sér þá frábæru aðstöðu sem Básar hafa upp á að bjóða með upphituðum básum og Trackman hermum.


Thorsvöllur verður áfram opinn eins og áður, enda er hann opinn allt árið ⛳


Frostlokanir – fylgist vel með GolfBox


Með lækkandi hitastigi og næturfrosti má búast við að loka þurfi völlunum með stuttum fyrirvara.

Við minnum því félagsmenn á að fylgjast vel með tilkynningum í GolfBox, þar sem lokanir vegna frosts geta orðið með skömmum fyrirvara og því gæti þurft að fella niður bókaða rástíma.


Við biðjum alla kylfinga um að sýna þessu skilning og virða lokanir vegna frosts. Mikilvægt er að hlífa völlunum þegar frost er í jörðu til að koma í veg fyrir skemmdir og tryggja að þeir komi sem best undan vetri.


Við þökkum félagsmönnum fyrir góða umgengni og skilning 💙


Golfklúbbur Reykjavíkur


Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf • 20. október 2026
Golfklúbbur Reykjavíkur sendir árlega út viðhorfskönnun til félagsmanna. Undanfarin ár hefur þessi könnun verið okkur, sem stjórnum klúbbnum, uppspretta hugmynda og ákvarðana sem snúa að öllum þáttum í starfsemi félagsins. Það hefur verið ómetanlegt að fá viðhorfin beint í æð og komið að miklu gagni við alla ákvarðanatöku. Eins og fram hefur komið í fréttum úr starfseminni síðasta árið er mikil uppbygging fyrirhuguð á næstu árum, töluverðar fjárfestingar og aukin þjónusta. Okkur sem störfum fyrir klúbbinn er mikill greiði gerður, ef meðlimirnir hjálpa okkur að fylgjast með viðhorfi þeirra til almennrar þjónustu og uppbyggingar næstu árin. Meðfylgjandi er hlekkur á könnunina og biðjum við þig um að svara henni við fyrsta tækifæri, könnunin verður opin til kl. 12:00 föstudaginn 30. október. Viðhorfskönnun GR 2026 Kveðja Stjórn og starfsfólk GR
Eftir Sigríður GR Golf • 19. október 2026
Dagbjartur Sigurbrandsson endaði jafn í 12. sæti og Hlynur Bergsson jafn í 20. sæti á Road to Europe Final by Sparekassen Danmark, lokamóti Nordic Golf League, sem lauk hjá Aalborg Golfklub í Danmörku í gær. Dagbjartur lauk leik á einu höggi undir pari en Hlynur á tveimur höggum yfir pari. Hér má sjá úrslit mótsins Dagbjartur lék hringina þrjá á 74, 66 og 72 höggum. Annar hringur hans var einn sá besti í öllu mótinu, en þar lék hann á fimm höggum undir pari. Hlynur lék hringina á 70, 73 og 72 höggum. Hann var jafn í sjötta sæti eftir fyrsta keppnisdag og í 18. sæti fyrir lokahringinn. Með mótinu lauk tímabilinu á Nordic Golf League. Dagbjartur endaði í 24. sæti Road to Europe stigalistans og Hlynur í 29. sæti. Fimm efstu kylfingar listans unnu sér keppnisrétt á HotelPlanner mótaröðinni árið 2027. Dagbjartur tók þátt í 20 mótum á Nordic Golf League á tímabilinu og endaði sex sinnum á meðal tíu efstu. Besti árangur hans var fjórða sætið á Royal Unibrew Championship í Danmörku í maí, en hann var einnig jafn í fjórða sæti á Folksam Championship í Svíþjóð í september. Hlynur lék í 22 mótum og náði þrívegis að enda á meðal tíu efstu. Hans besti árangur var fjórða sætið á Indoor Golf Group Göteborg Open í júní, auk þess sem hann varð sjöundi á ECCO Tour Sand Valley Masters í Póllandi og jafn í tíunda sæti á Folksam Championship. Dagbjartur á enn möguleika á að vinna sér keppnisrétt í gegnum úrtökumót DP World Tour. Hann leikur á öðru stigi úrtökumótanna á Spáni dagana 29. október til 1. nóvember. Sigurður Arnar Garðarsson og Ragnar Már Garðarsson verða þar einnig á meðal keppenda.
Eftir Sigríður GR Golf • 14. október 2026
Dagbjartur Sigurbrandsson og Hlynur Bergsson eru á meðal keppenda á Road to Europe Final by Sparekassen Danmark, lokamóti tímabilsins á Nordic Golf League. Mótið fer fram hjá Aalborg Golfklub í Álaborg í Danmörku dagana 14.-16. október. Fimmtíu efstu kylfingarnir á Road to Europe stigalistanum vinna sér þátttökurétt á lokamótinu. Leikinn er 54 holu höggleikur á þremur keppnisdögum. Dagbjartur mætir til leiks eftir góðan árangur á Destination Gotland Open í Svíþjóð í síðustu viku. Þar lauk hann keppni jafn í sjötta sæti á fjórum höggum undir pari eftir hringi upp á 71, 69 og 72 högg. Þetta var í sjötta skiptið á tímabilinu sem hann endaði á meðal tíu efstu á mótaröðinni. Fimm efstu kylfingar stigalistans í lok tímabilsins öðlast keppnisrétt á HotelPlanner mótaröðinni á næsta ári. Fyrir lokamótið er Dagbjartur í 23. sæti stigalistans með 16.771 stig og Hlynur í 29. sæti með 13.701 stig. Stigamunurinn upp í fimmta sætið er hins vegar meiri en þau 10.000 stig sem sigurvegarinn fær og geta þeir því ekki unnið sér keppnisrétt á HotelPlanner Tour í mótinu. Dagbjartur á enn möguleika á sæti á mótaröðinni, en hann spilaði sig inn á annað stig úrtökumóta DP World Tour með því að enda jafn í sjötta sæti í úrtökumóti í Þýskalandi í september. Annað stig úrtökumóta fer fram á Spáni dagana 29. október til 1. nóvember, þar sem Sigurður Arnar Garðarsson og Ragnar Már Garðarsson verða einnig á meðal keppenda.  Hér má fylgjast með stöðu mótsins
Eftir Sigríður GR Golf • 12. október 2026
Afsláttakvöld fyrirfélagsmenn Golfklúbbs Reykjavíkur! 66°Norður býður félagsmönnum GR upp á sérstök afsláttarkjör miðvikudagskvöldið næstkomandi þann 14. október í verslun þeirra í Miðhrauni 11, 210 Garðabær. Opið verður á milli kl. 16:00-20:00. Frábært tækifæri til að gera góð kaup á vönduðum útivistarfatnaði á einstaklega hagstæðu verði. 25% afsláttur af fullorðinsvörum 20% afsláttur af barnavörum Sértilboð á golffatnaði Við hlökkum til að taka á móti ykkur!
Eftir Sigríður GR Golf • 8. október 2026
Kæru félagsmenn, frá og með mánudeginum 12. október verður Ánni á Korpúlfsstaðavelli lokað fyrir veturinn. Áfram verður hægt að leika Sjóinn, Landið og Grafarholtsvöll á meðan veður leyfir. Breytingar verða einnig á salernisaðstöðu vallanna: Korpúlfsstaðir: Öll salernisaðstaða lokar frá og með morgundeginum, föstudaginn 9. október. Grafarholt: Salernisaðstaða við 6. teig lokar frá og með deginum í dag, fimmtudaginn 8. október. Grafarholt: Salernisaðstaða við 10. teig og milli 13. og 15. teigs verður opin eitthvað áfram. Lokanirnar eru liður í vetrarundirbúningi vallanna þar sem tæma þarf vatn úr kerfum til að koma í veg fyrir frostskemmdir. Við minnum félagsmenn á að ganga vel um vellina og virða þær lokanir sem kunna að verða vegna frosts. Við minnum einnig félagsmenn á að Thorsvöllur er alltaf opinn og svo eru Trackman hermarnir í Básum opnir sem hér segir – aldeilis hægt að æfa sveifluna þar undir hitara! Golfkveðja, Golfklúbbur Reykjavíkur
Eftir Sigríður GR Golf • 8. október 2026
Okkur er mikil ánægja að bjóða eldri kylfingum Golfklúbbi Reykjavíkur golfferð til Penina í Portúgal næsta vor eða frá 30. apríl til 10. maí 2027 í 10 nætur. Flogið verður til og frá Faro í beinu flugi með Icelandair. Brottför er þann 30. apríl kl. 11:00 og lent í Faro kl. 16:30. Flugtími heim þann 10. maí er frá Faro kl. 17:30 og lent í Keflavík kl. 21:05. Aksturinn frá flugvelli til Penina er um 50 mín. Penina er staðsett í vestur hluta Algarve héraðs skammt frá borginni Portimao. Aðrir líflegir bæir í næsta nágrenni við Penina eru Lagos, Lagoa og strandbærinn Carvoeiro. Penina er heimsþekkt Golfresort staðsett í yndislegri náttúru. Við hótelið eru 2 golfvellir. Keppnisvöllurinn Sir Henry Cotton 18 holur og Resort 9 holu völlur. Á staðnum er glæsilegt æfingasvæði ásamt púttflöt, vipp flöt, sandglompur og flöt til að slá inná. Á hótelinu eru 4 veitingarstaðir og 4 barir. Á kvöldin er róterað á milli veitingarstaða. https://www.icelandair.com/is-is/pakkaferdir/penina/ Verð: 409.900 kr. á mann í tvíbýli 461.600 kr í einbýli Innifalið: Beint flug til og frá Faro með Icelandair Innrituð taska (23 kg) og golfsett (23 kg) Akstur milli flugvallar og hótels Gisting með hálfu fæði ásamt drykkjum með kvöldmat *Ótakmarkað golf á Henry Cotton Championship velli með golfbíl Íslensk fararstjórn *Ótakmarkað golf: farþegar okkar geta spilað ótakmarkað golf sér að kostnaðarlausu alla spiladagana. Fastir rástímar okkar eru alla morgna og viðbótar golf er ekki hægt að panta fyrirfram og er háð umferð á vellinum daglega. Bókunarleiðbeiningar: Til að bóka smellið hér: https://www.icelandair.com/is-is/flug/hopabokun/stadfesta-oggreida/ beðið er um hópanúmer, notið númer: 1756 - Bókunarkerfið leiðir ykkur áfram og þið fyllið inn í þá reiti sem óskað er eftir. Þegar bókun er gerð þarf að greiða staðfestingargjald kr. 40,000. Lokagreiðsla er 6 vikum fyrir brottför. Hægt er að nota Vildarpunkta Icelandair sem borgun í þessa ferð. Einnig er hægt að nota öll Icelandair gjafabréf og inneignir. Eingöngu er hægt að nota eitt kortanúmer í staðfestingargjald fyrir hverja bókun (þegar bókað er á netinu) Ef eitthvað er óljóst er hægt að hafa samband við okkur á skrifstofu - golf@vita.is eða í síma 570-4457
Eftir Sigríður GR Golf • 7. október 2026
Ragnhildur Kristinsdóttir, Hulda Clara Gestsdóttir, Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Andrea Bergsdóttir verða á meðal keppenda á Terre Blanche Ladies Open, sem hefst á morgun, fimmtudaginn 8. október, á LET Access mótaröðinni í Frakklandi. Fimm mót eru eftir af tímabilinu og því mikið undir á lokasprettinum. Mótið fer fram dagana 8.-10. október á Le Riou vellinum í Suður-Frakklandi. Leikinn er 54 holu höggleikur. Ragnhildur Kristinsdóttir er í sextánda sæti stigalistans fyrir mótið. Hún hefur einnig leikið gott golf á tímabilinu, og endaði meðal annars í fimmta sæti á Swedish Strokeplay í sumar. Hulda er að leika sitt fyrsta tímabil sem atvinnukylfingur. Hennar besti árangur kom í júní þegar hún náði sínum fyrsta atvinnusigri á RB Czech Ladies Challenge í Tékklandi. Hulda ræddi stöðuna og lokasprettinn á tímabilinu í viðtali sem LET Access birti í dag. Þar kemur fram að hún finni vissulega fyrir pressunni sem fylgir því að vera í baráttu um eitt af sjö sætunum, en hún líti jafnframt á það sem jákvæða stöðu að vera í. Andrea Bergsdóttir hefur einnig átt gott tímabil og mætir til leiks eftir sinn besta árangur. Hún varð jöfn í þriðja sæti á Lavaux Ladies Open í Sviss í september og situr í átjánda sæti stigalistans. Guðrún Brá Björgvinsdóttir er einnig á meðal keppenda mótsins og verða íslensku kylfingarnir því fjórir talsins. Guðrún Brá, Íslandsmeistari síðustu tveggja ára, kemur með mikla reynslu inn í mótið eftir fjölmörg ár í atvinnumennsku og þátttöku á sterkustu mótaröðum Evrópu. Terre Blanche Ladies Open er fimmtánda mót tímabilsins af nítján og markar upphafið að lokaspretti mótaraðarinnar. Eftir mótið í Frakklandi ferðast mótaröðin til Portúgal og Spánar og verður verðlaunafé lokamótsins hátt í fimmtán milljónir króna. Sjö efstu kylfingarnir á stigalistanum í lok tímabilsins fá fullan keppnisrétt á Ladies European Tour árið 2027. Kylfingar í sætum 8-32 tryggja sér hins vegar beint sæti í lokaúrtökumóti LET. Hér má fylgjast með stöðu mótsins
Eftir Sigríður GR Golf • 6. október 2026
Bændaglíman , lokamót ársins fór fram í Grafarholti laugardaginn 26. september. Tvímennt var á öllum teigum Holtsins og því 144 kylfingar sem mættu til leik og leikfyrirkomulagið var fjögurra manna Texas Scramble, líkt og undanfarin ár. Þema dagsins var Gulur september og gátu kylfingar keypt sér Mölligan. Hver leikmaður gat keypt sér að hámarki þrjá Mölligana og allur ágóði af sölu þeirra rann óskiptur til Píeta samtakanna. Píeta samtökin sinna mikilvægu forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða. Við söfnuðum 520.500 kr. sem Mjöll Daníelsdóttir fór og afhenti Píeta samtökunum fyrr hönd félagsmanna Golfklúbbs Reykjavíkur 💛 Keppendahópnum var líkt og fyrri ár skipt í tvö lið, sem léku undir stjórn valinkunnra starfsmanna Golfklúbbs Reykjavíkur, en það voru þeir Svavar Guðjónsson, forstöðumaður Bása, sem fór fyrir liði Holtsins og Páll Birkir Reynisson, forstöðumaður íþróttasviðs, sem fór fyrir liði Korpunnar. Leikar fóru svo þannig að Korpa hafði betur á 198 höggum undir pari en Holtið endaði á 192 höggum undir pari. Korpa ver því titilinn síðan í fyrra. Tvö lið voru jöfn í þriðja sæti á 15 höggum undir pari. Að teknu tilliti til höggafjölda á seinni 9 holum vallarins, hjá liðum sem voru á sama skori urðu úrslit þannig að í þriðja sæti voru: Guðjón Valgeir Ragnarsson Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir Sigurður Sigurgeirsson Þóra Björg Róbertsdóttir Í öðru sæti á 16 höggum undir pari voru: Ellert Þór Magnason Ingunn Erla Ingvadóttir Kristján Daníelsson Mjöll Daníelsdóttir Sigurvegarar mótsins á 20 höggum undir pari voru: Elísabet Katrín Benónýsdóttir Iouri Zinoviev Óttar Guðmundsson Stefanía Guðjónsdóttir Við þökkum keppendum í Bændaglímu fyrir frábæran dag á vellinum og sigurvegurum til hamingju með árangurinn! Píeta samtökunum þökkum við þeirra mikilvæga hlutverki í samfélaginu og erum stolt af því að félagsmenn Golfklúbbs Reykjavíkur hafi lagt málefninu lið 💛
Eftir Sigríður GR Golf • 2. október 2026
Þriðjudaginn 29. september síðastliðinn var lokahóf barna-, unglinga- og afreksstarfs Golfklúbbs Reykjavíkur haldið á Korpu. Dagskráin samanstóð af púttkeppni, verðlaunaafhendingu og pizzaveislu. Lokahófið markaði formleg lok sumartímabilsins eftir viðburðaríkt og skemmtilegt ár. Þátttakendum í starfi klúbbsins fjölgaði á árinu og var sérstaklega ánægjulegt að sjá mörg ný andlit bætast í hópinn samhliða þeim kylfingum sem hafa tekið þátt undanfarin ár. Á lokahófinu var farið yfir tímabilið og veitt verðlaun fyrir Hagar mótaröð íþróttastarfsins. Allir sem mættu fengu jafnframt bíómiða í boði Smárabíó. Þjálfarar starfsins fá kærkomið hlé frá hefðbundinni þjálfun í október, en ýmis dagskrá verður engu að síður í boði fyrir kylfingana okkar áður en æfingar hefjast aftur af fullum krafti 2. nóvember. Meðal þess sem fram undan er í október eru bíóferð, bingó og opnar golfæfingar seinni hluta mánaðarins. Það verður því áfram nóg um að vera hjá kylfingum GR á komandi vikum og mánuðum. Hagar mótaröðin Hagar mótaröðin er innanfélagsmótaröð fyrir iðkendur í íþróttastarfi GR. Keppt er í flokkum eftir aldri eða forgjöf og mótin fara fram á þriðjudögum yfir sumartímann. Góð þátttaka var í mótaröðinni í ár. Hún er mikilvægur vettvangur fyrir unga kylfinga klúbbsins til að stíga sín fyrstu skref í keppnisgolfi og öðlast dýrmæta reynslu. Margir af fremstu kylfingum GR hófu sinn keppnisferil einmitt á þessari mótaröð og hefur hún því í gegnum árin sannað mikilvægi sitt í starfi klúbbsins 🥇🥈🥉 Keppt var í punktakeppni og alls voru leikin sjö mót. Fjögur bestu mót hvers kylfings töldu til stiga. Veitt voru verðlaun í hverjum flokki auk þess sem heildarstigameistari mótaraðarinnar var krýndur 🏆 Stigameistari Hagar mótaraðarinnar árið 2026 er Daði Hrafn Ásgeirsson 🏆 Helstu úrslit úr flokkum eru þessi: Stúlkur forgjöf 40 og hærri Iðunn Jóhanna Frostadóttir Vala Arnarsdóttir Karen Helga Birkisdóttir Piltar forgjöf 40 og hærri Rúrik Ívarsson og Sölvi Birgisson Sævar Hrafn Garðarsson Gunnar Bjarki Valdimarsson Piltar forgjöf 30-40 Hreiðar Birkir Baldvinsson Dagur Snær Júlíusson Róbert Leó Gylfason og Ásdór Þór Gunnarsson Piltar 11-12 ára Daði Hrafn Ásgeirsson Alexander Aron Ívarsson Magnús Torfi Sigurðsson Piltar 13-14 ára Jóhannes Rafnar Steingrímsson Gunnar Ágúst Snæland Tómas Númi Sigurbjörnsson Stúlkur 15-18 ára Hjördís Jónasdóttir Katla María Sigurbjörnsdóttir Viktoría Helga Tryggvadóttir Piltar 15-18 ára Haukur Óli Magnússon Ingimar Jónasson Gunnar Freyr Þorsteinsson Stúlkur 19-22 ára Sara Ágústa Sigurbjörnsdóttir Piltar 19-22 ára Gunnar Þórður Jónasson Sigurður Helgi Hlöðversson Andri Guðmann Agnarsson Við óskum Daða Hrafni og öllum öðrum verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangurinn. Jafnframt þökkum við öllum keppendum kærlega fyrir þátttökuna í sumar. Við hlökkum til næsta tímabils og stefnum að því að efla mótaröðina enn frekar og hvetja fleiri kylfinga í starfi GR til þátttöku.
Eftir Sigríður GR Golf • 30. september 2026
Haraldur Franklín Magnús hóf leik í Abu Dhabi Challenge á HotelPlanner Tour á morgun eða öllu heldur í nótt á íslenskum tíma Leikið verður á Al Ain Equestrian, Shooting & Golf Club í Sameinuðu arabísku furstadæmunum dagana 30. september til 3. október. Mótið er síðasta tækifæri kylfinga til þess að tryggja sér sæti í lokaspretti HotelPlanner Tour. Að mótinu loknu halda 68 efstu menn stigalistans áfram í tvö mót í Kína áður en lokamót tímabilsins fer fram á Mallorca. Haraldur er í 148. sæti stigalistans fyrir mótið með 77,6 stig. Haraldur átti rástíma kl. 08:00 að staðartíma, sem var kl. 04:00 að íslenskum tíma, á fyrsta keppnisdegi. Hann hóf leik á 10. teig ásamt Ryan Lumsden frá Skotlandi og Anders Emil Ejlersen frá Danmörku. Haraldur lauk leik á fyrsta hring mótisins á 71 höggi eða einu höggi yfir pari, með 5 skolla og 4 fugla. Aðstæður verða töluvert frábrugðnar því sem Haraldur og flestir evrópsku kylfingarnir eiga að venjast. Mikill hiti hefur verið á Al Ain-svæðinu undanfarna daga og verður hitinn áfram stór þáttur í mótinu. Hitinn hefur farið vel yfir 40 gráður yfir heitasta hluta dagsins. Hér má fylgjast með stöðu mótsins
Show More