Veturinn í Básum – vetraraðild og lengri opnunartími
Kæru kylfingar,
Þótt golftímabilinu utandyra fari senn að ljúka er engin ástæða fyrir því að sveiflan fari í vetrarfrí! Í Básum er hægt að halda sveiflunni við og njóta golfæfinga allan veturinn.
Vetraraðild í Básum – sala hefst 1. nóvember
Frá og með 1. nóvember hefjum við sölu á vetraraðild í Básum. Í boði verða þrjár mismunandi vetraraðildir sem fara í sölu í nóvember, desember og janúar.
Félagsmenn Golfklúbbs Reykjavíkur njóta sérstaks afsláttar af vetraraðild og hvetjum við félagsmenn til að nýta sér þetta frábæra tækifæri til að halda golfæfingunum gangandi yfir vetrarmánuðina.
Lengri opnunartími um helgar
Frá og með 1. nóvember lengjum við opnunartíma Bása um helgar. Þá verður opnað kl. 08:00 í stað kl. 10:00 bæði á laugardögum og sunnudögum.
Þetta eru góðar fréttir fyrir morgunhanana sem vilja byrja helgina á nokkrum góðum sveiflum!
Kaffibolli á milli högga
Við minnum einnig á kaffiaðstöðuna í Básum þar sem hægt er að fá sér góðan kaffibolla úr sjálfsalanum. Tilvalið til að hlýja sér á milli æfinga eða njóta smá kaffipásu í góðum félagsskap.
Við hvetjum félagsmenn til að nýta sér aðstöðuna í Básum í vetur, halda sér í golfstuði og mæta vel undirbúin til leiks þegar vorið kemur.
Golfkveðja,
Golfklúbbur Reykjavíkur
Recent Posts













