Fyrsta Bingó vetrarins hjá 65+ GR-ingum - fimmtudaginn 19. nóvember
Fyrsta Bingó ársins hjá 65 ára og eldri kylfingum klúbbsins verður haldið í veitingasal Korpu fimmtudaginn 19. nóvember kl. 10:00.
ATH! Fyrsta bingóspjaldið kostar 1000 kr. hvert spjald umfram það kostar 500 kr. Greiða má með seðlum og korti fyrir spjaldið/spjöldin.
Í hléi er boðið er uppá kaffi og kleinur.
Bingó verður haldið þessa daga fram að áramótum:
- 19. nóvember 2026
- 17. desember 2026
Almennt er vel mætt á bingó eldri kylfinga og eru flottir vinningar í boði. Við hvetjum þá félagsmenn, sem hafa náð 65 ára aldri, til að mæta og taka þátt í bingóviðburðum í vetur.
Svona viðburðir gerast þó ekki á sjálfum sér og margar hendur vinna létt verk - en til þess að verkið verði létt(ara) verður hendurnar að vera til staðar. Bingónefnd eldri kylfinga óskar því eftir áhugasömum eldri kkylfingum sem eru til í að leggja hönd á plóg að senda tölvupóst á hann Dóra bingóstjóra á leturval@litrof.is
Recent Posts











