Böðvar Bragi og Hákon Örn í öðru sæti á GSÍ mótaröðinni
Böðvar Bragi Pálsson og Hákon Örn Magnússon luku leik jafnir í öðru sæti GSÍ mótaraðarinnar. Powerade-mót Golfklúbbs Þorlákshafnar lauk í gær en það var jafnframt þriðja mót mótaraðarinnar. Leiknar voru 36 holur á laugardaginn með niðurskurði eftir seinni hringinn, á sunnudaginn voru svo leiknar 18 holur.
Böðvar Bragi leiddi mótið í karlaflokki eftir 36 holur á tólf höggum undir pari (-12) eftir tvo frábæra hringi (67-65). Frábær spilamennska hjá Böðvari Braga.
Böðvar Bragi endaði mótið jafn í öðru sæti ásamt Hákoni Erni, eftir að Aron Snær (GKG) sótti fjögur högg á Böðvar Braga á síðustu tveimur holunum. Hákon Örn fékk nítján fulga í mótinu sem var mest allra kylfinga en bæði Böðvar Bragi og Aron Snær fengu þrjá erni, sem engin annar kylfingu lék eftir.
Perla Sól var efst GR-inga í kvennaflokki og lauk leik í 5. sæti á 7 höggum yfir pari (+7).
Við óskum Böðvari Braga og Hákoni Erni innilega til hamingju með sinn árangur!
Recent Posts











