Til hamingju með nýja 1. braut í Grafarholti
Sigríður GR Golf • 6. júní 2026
Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf
•
21. júlí 2026
Kæru félagsmenn, nú styttist óðfluga í að GR haldi stærsta golfmót ársins að Korpúlfsstöðum og er undirbúningur í fullum gangi. Því miður missa félagsmenn Korpúlfsstaði þá vikuna, en það gleður okkur að tilkynna að við munum opna nýja teiga og flöt á 3. braut í Grafarholti ásamt nýjum teigum á 4. braut þriðjudaginn 4.ágúst og vonum við að það mælist vel fyrir. Verði áfram mikil vætutíð eða láti svæðin mikið á sjá þá gætum við þurft að endurskoða, en við vonum það besta ! Samhliða þessu þá tilkynnist hér með opnun nýrra 63. teiga á Korpu, á brautum 2, 4, 9, 11 og 14, frá og með komandi föstudegi 24.júlí (síðdegis). Þessir teigar verða notaðir í komandi Íslandsmóti og nú getur okkar besta fólk farið að æfa sig á nýjum teigum, sem margir hverjir setja sterkan svip á völlinn. Golfkveðja, Vallarsvið

Eftir Sigríður GR Golf
•
21. júlí 2026
Unglingamótaröðin heimsótti Jaðarsvöll á Akureyri um helgina, þar sem ungir og efnilegir kylfingar léku við frábærar aðstæður. Tæplega 80 kylfingar mættu til leiks í mótið og var mikið líf á svæðinu. Leikinn var 54 holu höggleikur án forgjafar í flokki 15-18 ára drengja og stúlkna. Einnig voru veitt verðlaun fyrir bestan árangur í flokki 15-16 ára og 17-18 ára. Í stúlknaflokki stóð Embla Hrönn Hallsdóttir, GKG, uppi sem sigurvegari, en hún lék hringina þrjá á 77, 69 og 74 höggum og lauk leik á sjö höggum yfir pari. Embla leiddi með fjórum höggum fyrir lokahringinn og bætti við forskotið með flottum lokahring. Bryndís Eva Ágústsdóttir, GA, varð önnur á þrettán höggum yfir pari og Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir, GR, varð þriðja á fjórtán höggum yfir pari. Ásdís fékk flest pör allra kylfinga mótsins, alls 35 á hringjunum þremur. Bryndís kom næst á eftir með 33 pör. Embla sótti högg sín á par 3 og par 5 holum Jaðarsvallar, en hún var með besta meðalskor flokksins á þeim báðum. Kristín María Valsdóttir, GK, lék á besta skori 15-16 ára stúlkna, en hún lauk leik á 30 höggum yfir pari eftir hringi upp á 80, 81 og 82 högg. Kristján Karl Guðjónsson, GM, vann piltaflokkinn á einu höggi undir pari. Hann léki hringi sína á 68, 75 og 69 höggum og leiddi frá fyrsta hring. Þetta er þriðji sigur Kristjáns í fjórum mótum, en hann hefur leikið öll fjögur mótin undir pari. Gunnar Þór Heimisson og Arnar Daði Svavarsson, báðir GKG, deildu öðru sætinu á sex höggum yfir pari. Heimamennirnir Ágúst Már Þorvaldsson og Egill Örn Jónsson voru jafnir í fyrsta sæti 15-16 ára pilta á tíu höggum yfir pari. Þeir léku bráðabana um sigurinn þar sem Ágúst hafði betur. Hér má sjá úrslit mótsins í heild sinni Myndasíða Unglingamótaraðarinnar 2026 Myndasíða Golf14 2026 Myndasíða GSÍ mótaraðarinnar 2026

Eftir Sigríður GR Golf
•
20. júlí 2026
Axel Bóasson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir stóðu uppi sem sigurvegarar á heimavelli þegar Hvaleyrarbikarnum lauk á Hvaleyrarvelli í dag. Guðrún Brá vann kvennaflokkinn með sex högga mun en Axel tryggði sér sigur gegn Sigurði Bjarka Blumenstein á annarri holu bráðabana. Axel hafði betur í bráðabana Axel og Sigurður léku báðir lokahringinn á 69 höggum, þremur undir pari, og áttu bestu hringi dagsins. Sigurður Bjarki lék hringina þrjá á 70, 75 og 69 höggum en Axel á 73, 72 og 69 höggum. Þeir luku því báðir leik á 214 höggum, tveimur höggum undir pari. Þeir léku 15. holu Hvaleyrarvallar í bráðabananum. Báðir fengu par þegar holan var leikin í fyrra skiptið og þurftu því að leika hana aftur. Í seinna skiptið fékk Axel par en Sigurður Bjarki missti parpútt sitt. Axel tryggði sér með því sigur í Hvaleyrarbikarnum. Axel fékk 42 pör, sjö fugla og fimm skolla í mótinu, en enginn kylfingur paraði fleiri holur en heimamaðurinn. Böðvar Bragi Pálsson var einnig í baráttu um sigurinn fram á síðustu holu. Hann þurfti fugl á 18. holu til að komast í bráðabanann en fékk par og lauk leik á einu höggi undir pari. Böðvar varð því þriðji, höggi á eftir Axel og Sigurði Bjarka. Tómas Eiríksson Hjaltested lék lokahringinn á 70 höggum og varð fjórði á pari. Aron Emil Gunnarsson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Aron Snær Júlíusson urðu jafnir í fimmta sæti á tveimur höggum yfir pari. Guðrún Brá leiddi frá fyrsta hring Guðrún Brá hóf lokahringinn með fimm högga forskot og var sigur hennar aldrei í hættu. Hún lék lokahringinn á 75 höggum, þremur yfir pari, og lauk mótinu á 220 höggum, fjórum höggum yfir pari. Guðrún Brá vann með sex högga mun eftir hringi upp á 73, 72 og 75 högg. Stöðugleiki einkenndi spilamennsku Guðrúnar í mótinu. Hún fékk 40 pör á holunum 54, auk fimm fugla og níu skolla. Hún fékk engann tvöfaldan skolla í öllu mótinu. Perla Sól Sigurbrandsdóttir átti besta hring dagsins í kvennaflokki. Hún lék á 73 höggum, einu yfir pari, og fór upp um tvö sæti. Perla varð jöfn Elsu Maren Steinarsdóttur í öðru sæti á tíu höggum yfir pari. Perla fékk jafnframt flesta fugla í kvennaflokki í mótinu, eða átta. Heiða Rakel Rafnsdóttir og Þóra Sigríður Sveinsdóttir urðu jafnar í fjórða sæti á 17 höggum yfir pari. Alls 446 fuglar og níu ernir Keppendur fengu samtals 446 fugla og níu erni í mótinu. Sjöunda hola Hvaleyrarvallar reyndist léttust og var leikin að meðaltali á 0,34 höggum undir pari. Tólfta holan var erfiðust og var leikin á 0,83 höggum yfir pari að meðaltali. Róbert Leó Arnórsson og Breki Gunnarsson Arndal fengu flesta fugla í karlaflokki, tólf hvor. Sigurður Bjarki var skammt undan með ellefu fugla og einn örn. Þessi tölfræði var sótt af skemmtilegri og nýrri upplýsingasíðu mótsins. Óskum öllum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn og þökkum Golfklúbbnum Keili fyrir frábært mót

Eftir Sigríður GR Golf
•
20. júlí 2026
Kæru kylfingar Vegna mikillar rigningar síðustu daga og þá næstu hafa vallarstjórar tekið ákvörðun um að leyfa ekki golfbíla á völlum félagsins í á morgun (þriðjudag) og á miðvikudaginn. Tekin verður ákvörðun með seinnpart vikunnar þegar nær dregur og það tilkynnt. Kveðja, Vallarsvið.

Eftir Sigríður GR Golf
•
20. júlí 2026
Opna Footjoy fór fram á Grafarholtsvelli í dag, sunnudaginn 19.júlí. Frábært þátttaka var í mótinu, um 190 manns tóku þátt. Afar blautt var í veðri en kylfingar létu það ekki á sig fá. Veitt voru verðklaun fyrir 3 efstu sætu í punktakeppni karla og kvenna, einnig voru veitt verðlaun fyrir besta skor karla og kvenna. Nándarverðlaun voru veitt á öllum par 3 holum vallarins auk lengsta teighögg karla og kvenna. Úrslitin voru eftirfarandi. Punktakeppni karla 1. Jóhannes Jóhannesson 41 punktar 2. Héðinn Þorsteinsson 40 punktar 3. Guðlaugur Pálsson 39 punktar (betri seinni 9) Besta skor karla: Sigurþór Jónsson 71 högg Punktakeppni kvenna: 1. Auður Valdimarsdóttir 37 punktar 2. Hrund Ýr Arnardóttir 37 punktar (betri seinni 9) 3. Helga Björk Sigbjarnadóttir 35 punktar (betri seinni 9) Besta skor kvenna: Írena Ásdís Óskarsdóttir 81 högg Nándarverðlaun: 2.braut: Árni Knútur Þórólfsson 2,57 m 6.braut: Elsa Nielsen 1.79 m 11.braut: Atli Freyr Ágústsson 2,3 m 17.braut: Atli Freyr Ágústsson 1,17 m Lengsta upphafshögg karla: Sigurþór Jónsson Lengsta upphafshögg kvenna: Elsa Neilsen Golfklúbbur Reykjavikur óskar vinningshöfum innilega til hamingju með sinn árangur. Hægt er að nálgast vinninga á skrifstofu félagsins frá og með mánudeginu 20.júlí. Skrifstofan er opin alla virka daga frá kl.9-16. Golfklúbbur Reykjavíkur & ÍSAM

Eftir Sigríður GR Golf
•
20. júlí 2026
Íslandsmóti eldri kylfinga lauk á Kiðjabergsvelli í dag. Mótið fór fram dagana 16.-18. júlí og voru leiknar 54 holur í fjórum flokkum, 50 ára og eldri og 65 ára og eldri karla og kvenna. Þórdís Geirsdóttir, Sigurbjörn Þorgeirsson, Guðrún Garðars og Gauti Grétarsson fögnuðu Íslandsmeistaratitlum eldri kylfinga 2026 eftir skemmtilegt og spennandi mót. Hér má sjá úrslit mótsins í heild sinni Þórdís Íslandsmeistari í flokki 50+ kvenna Þórdís Geirsdóttir úr Golfklúbbnum Keili varð Íslandsmeistari í flokki 50 ára og eldri og varði því titil sinn. Hún lék hringina þrjá á 81, 86 og 82 höggum og lauk leik á 249 höggum, 36 höggum yfir pari. Þórdís var með fimm högga forskot fyrir lokahringinn og hélt forystunni sinni þrátt fyrir góða spilamennsku Ragnheiðar Sigurðardóttur í dag. Ragnheiður átti besta hring dagsins í flokknum, en hún lék á 80 höggum og minnkaði forskotið niður í þrjú högg. Helga Þorvaldsdóttir lék lokahringinn á 83 höggum og tryggði sér þriðja sætið á 259 höggum. Lilja Guðríður Karlsdóttir varð fjórða og Sigríður Kristinsdóttir fimmta. Miklar sviptingar á lokaholunum í flokki 50+ karla Mikil spenna var í flokki 50 ára og eldri karla þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en á lokaholunni. Sigurbjörn Þorgeirsson úr Golfklúbbi Fjallabyggðar varð Íslandsmeistari á 228 höggum, 15 höggum yfir pari, og varði einnig titil sinn. Sigurbjörn hóf lokahringinn tveimur höggum á undan Jóni Karlssyni en þremur höggum á eftir Jóni Snorra Halldórssyni. Allir þrír voru því í baráttunni um titilinn. Jón Snorri var enn þremur höggum á undan Sigurbirni eftir 12 holur lokahringsins. Jón fékk hins vegar tvöfaldan skolla á 13. holu og skolla á þremur holum í röð þar á eftir. Sigurbjörn jafnaði við hann á 14. holu, komst höggi fram úr á þeirri 15. og bætti öðru höggi við forskotið á lokaholunni. Á sama tíma lék Jón Karlsson frábært golf í dag og var kominn einu höggi á undan Sigurbirni þegar þrjár holur voru eftir. Báðir fengu þeir skolla á 16. holu en Jón fékk annan skolla á þeirri 17. og voru þeir því jafnir fyrir lokaholuna. Sigurbjörn gerði sér lítið fyrir og fékk fugl á 18. holu á meðan Jón fékk skolla. Tveggja högga sveifla á lokaholunni og Sigurbjörn Íslandsmeistari á nýjan leik. Jón Karlsson og Jón Snorri Halldórsson enduðu jafnir í öðru sæti á 230 höggum. Árni Páll Hansson varð fjórði á 232 höggum og Frans Páll Sigurðsson fimmti, aðeins höggi þar á eftir. Guðrún hafði betur eftir jafna baráttu í flokki 65+ kvenna Guðrún Garðars úr Golfklúbbi Reykjavíkur varð Íslandsmeistari í flokki 65 ára og eldri. Hún og Steinunn Sæmundsdóttir einnig úr Golfklúbbi Reykjavíkur voru jafnar fyrir lokahringinn eftir að hafa báðar leikið fyrstu tvo hringina á 84 höggum. Guðrún lék lokahringinn á 82 höggum og lauk mótinu á 250 höggum, 37 höggum yfir pari. Hún var einu höggi á undan Steinunni þegar þrjár holur voru eftir og bætti tveimur höggum við forskotið á lokaholunum. Steinunn lék lokahringinn á 85 höggum og varð önnur, þremur höggum á eftir Guðrúnu. María Málfríður Guðnadóttir, ríkjandi meistari flokksins, átti einnig góðan lokahring upp á 82 högg og varð þriðja á 257 höggum. Ágústa Dúa Jónsdóttir varð fjórða og Jóhanna Ríkey Sigurðardóttir fimmta. Öruggur sigur Gauta í flokki 65+ karla Gauti Grétarsson úr Nesklúbbnum tryggði sér öruggan sigur í flokki 65 ára og eldri. Hann lék hringina á 78, 74 og 75 höggum og lauk mótinu á 227 höggum, 14 höggum yfir pari. Gauti var með níu högga forskot fyrir lokahringinn og bætti höggum við það á lokadeginum. Hann vann að lokum með þrettán högga mun. Kristján V. Kristjánsson úr Golfklúbbnum Keili varð annar á 240 höggum eftir tvo hringi í röð á 77 höggum. Brynjar Harðarson úr Golfklúbbi Reykjavíkur varð þriðji, Hlöðver Sigurgeir Guðnason fjórði og Kristinn Þórir Kristjánsson fimmti.

Eftir Sigríður GR Golf
•
19. júlí 2026
Það er aldeilis búin að vera barátta á toppnum í Hvaleyrarbikarnum! Aron Snær lék annan hringinn á 70 höggum, tveimur undir pari, og er samtals á fjórum höggum undir pari. Hann hefur leikið báða hringi mótsins á 70 höggum og leiðir með einu höggi. Böðvar Bragi Pálsson er einn í öðru sæti á þremur höggum undir pari eftir hringi upp á 71 og 70 högg. Böðvar hefur sýnt mikinn stöðugleika og aðeins fengið tvo skolla á hringjunum tveimur. Hann hefur fengið 29 pör og fimm fugla. Jóhannes Guðmundsson, ríkjandi meistari Hvaleyrarbikarsins, er í þriðja sæti á einu höggi undir pari. Hann lék annan hringinn á pari. Guðrún Brá Björgvinsdóttir leiðir kvennaflokkinn á einu höggi yfir pari. Elsa Maren Steinarsdóttir lék annan hringinn á 74 höggum og færðist upp um tvö sæti. Hún er ein í öðru sæti á sex höggum yfir pari. Þóra Sigríður Sveinsdóttir er í þriðja sæti á átta höggum yfir pari og Perla Sól Sigurbrandsdóttir í því fjórða á níu höggum yfir pari. Ný og skemmtileg upplýsingasíða mótsins hefur reynst áhorfendum vel. Þar má finna öll helstu skor, tölfræði og upplýsingar frá mótinu. Keppendur hafa samtals fengið 325 fugla og sjö erni eftir fyrstu tvo hringina. Sjöunda hola Hvaleyrarvallar hefur reynst gjöfulust og verið leikin að meðaltali á 0,34 höggum undir pari. Tólfta holan hefur verið erfiðust og verið leikin á 0,86 höggum yfir pari að meðaltali. Hægt er að fylgjast með stöðunni og ítarlegri tölfræði í beinni á mótasíðu Hvaleyrarbikarsins .

Eftir Sigríður GR Golf
•
17. júlí 2026
Golf 14 og Unglingamótaröð GSÍ heimsækja Jaðarsvöll á Akureyri næstu dagana, þar sem ungir og efnilegir kylfingar leika við frábærar aðstæður. Um 140 kylfingar mæta til leiks í mótin tvö, og verður því mikið líf á svæðinu. Veðrið ætti að leika við kylfinga á Akureyri, en spáð er um 20 gráðum alla þrjá keppnisdagana. Unglingamótaröðin Unglingamótaröðin fer fram dagana 17.-19. júlí. Leikinn er 54 holu höggleikur án forgjafar í flokkum 15-18 ára pilta og stúlkna. Einnig verða veitt verðlaun fyrir besta árangur í flokki 17-18 ára og 15-16 ára. 82 kylfingar keppa í mótinu, 25 stúlkur og 57 drengir. Hér má sjá rástíma og stöðu í Unglingamótaröðinni Golf 14 Golf 14 mótið fer fram dagana 18.-19. júlí. Keppt verður í flokki 14 ára og yngri drengja og stúlkna og leikinn höggleikur án forgjafar. Til leiks mæta 57 kylfingar, 47 drengir og 10 stúlkur. Hér má sjá rástíma og stöðu Golf 14

Eftir Sigríður GR Golf
•
17. júlí 2026
Golfklúbburinn Keilir heldur Hvaleyrarbikarinn 2026 dagana 17.-19. júlí. Mótið er fimmta mótið á GSÍ mótaröðinni á þessu tímabili. Smelltu hér fyrir stöðu, rástíma og úrslit. Í karlaflokki eru 76 kylfingar skráðir til leiks. Golfklúbbur Reykjavíkur á flesta kylfinga, alls 23, eða rúmlega 30% keppenda. Sjö forgjafarlægstu kylfingarnir eru allir með +4.5 eða lægra. Hér má sjá lista yfir þá. Logi Sigurðsson, Golfklúbbi Suðurnesja +5,5 Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Golfklúbbi Reykjavíkur +5,2 Hákon Örn Magnússon, Golfklúbbi Reykjavíkur +4,7 Daníel Ísak Steinarsson, Golfklúbbnum Keili +4,6 Axel Bóasson, Golfklúbbnum Keili +4,5 Aron Emil Gunnarsson, Golfklúbbi Selfoss +4,5 Aron Snær Júlíusson, Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar +4,5 Meðalforgjöf karlaflokksins er +0,7. Í kvennaflokki mæta 17 kylfingar til leiks frá níu golfklúbbum. Golfklúbburinn Keilir á flesta keppendur, alls fjóra. Sjö forgjafarlægstu kylfingarnir eru allir með +4.5 eða lægra. Hér má sjá lista yfir þá. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Golfklúbbnum Keili +3,7 Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Golfklúbbi Reykjavíkur +2,9 Fjóla Margrét Viðarsdóttir, Golfklúbbi Suðurnesja +1,6 Elsa Maren Steinarsdóttir, Golfklúbbnum Leyni +1,5 Guðrún Birna Snæþórsdóttir, Golfklúbbnum Keili 0,3 Ásdís Valtýsdóttir, Golfklúbbi Reykjavíkur 0,3 Heiða Rakel Rafnsdóttir, Golfklúbbi Mosfellsbæjar 0,6 Meðalforgjöf kvennaflokksins er 1.5. Bikarinn hannaður í Japan Keppt er um Hvaleyrarbikarana eins og nafn mótsins gefur til kynna. Verðlaunagripurinn á sér nokkra sögu og óvenjulega. Er hann einn af elstu bikurunum í safninu hjá golfklúbbnum Keili. Var bikarinn gefinn af Toyota umboðinu árið 1979 eða tólf árum eftir að klúbburinn var stofnaður. Var keppt um bikarinn á opnu móti hjá Keili sem haldið var í nokkur ár. Bikarinn er veglegur og fremur óvenjulegur í útliti. Var hann hannaður og sérsmíðaður í listagallerí í Japan á sínum tíma. Þegar stigamótinu Hvaleyrarbikarnum var komið á fót árið 2016 þurfti að búa til annað eintak enda keppt í tveimur flokkum í Hvaleyrarbikarnum. Var bikarinn sendur til Kína með það fyrir augum að búa til eftirlíkingu en Kínverjarnir sem ætluðu að taka verkið að sér treystu sér ekki til þess þegar á hólminn var komið. Höfðu Keilismenn þá upp á listagalleríinu í Japan og var þar smíðaður annar bikar sem gefinn var af Icewear. Þá þurfti raunar einnig að gera lítillega við bikarinn sem hafði skemmst á heimleiðinni frá Japan. Bikarinn hefur því farið nokkrar ferðir á milli Íslands og Asíu. Mikilvæg stig á stigalista GSÍ Hvaleyrarbikarinn er fimmta mót ársins á GSÍ mótaröðinni. Hér má sjá stöðu á stigalistum karla og kvenna .

Eftir Sigríður GR Golf
•
16. júlí 2026
Íslandsmót eldri kylfinga fer fram á Kiðjabergsvelli dagana 16.-18. júlí. Keppt er í tveimur aldursflokkum hjá körlum og konum, 50 ára og eldri, og 65 ára og eldri. Smelltu hér fyrir rástíma og stöðu mótsins: Alls er 61 keppandi skráður, frá 14 golfklúbbum. Golfklúbbur Reykjavíkur á flesta keppendur, alls 20. Næstflestir koma frá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, eða 12. Lægstu forgjafir mótsins eiga Jón Snorri Halldórsson og Jón Karlsson í karlaflokki með +0.1, og Þórdís Geirsdóttir í kvennaflokki með 1,0. Þórdís Geirsdóttir, Sigurbjörn Þorgeirsson, María Málfríður Guðnadóttir og Hannes Eyvindsson eru ríkjandi meistarar mótsins, en Hannes er sá eini sem verður ekki á meðal keppenda í ár. Aðrir ríkjandi meistarar mæta á Kiðjaberg til að verja titilinn.


